Börn gera vel ef þau geta: skólaganga barna með ADHD

Ritgerð þessi er 40 ECTS eininga verkefni til fullnustu M.Art. prófs við Háskólann á Akureyri, kennaradeild, hug –og félagsvísindasvið. Markmið verksins er að öðlast betri skilning á taugaþroskaröskuninni ADHD sem lengi vel var aðeins talin finnast meðal barna og unglinga, en er nú viðurkennt að fyl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Sigurðardóttir 1954-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18727
Description
Summary:Ritgerð þessi er 40 ECTS eininga verkefni til fullnustu M.Art. prófs við Háskólann á Akureyri, kennaradeild, hug –og félagsvísindasvið. Markmið verksins er að öðlast betri skilning á taugaþroskaröskuninni ADHD sem lengi vel var aðeins talin finnast meðal barna og unglinga, en er nú viðurkennt að fylgt getur fólki alla ævi. Nú um stundir beina fræðimenn sjónum sínum í æ ríkara mæli að mikilvægi þess að hafist sé sem fyrst handa til aðstoðar þeim sem glíma við ADHD, með það að markmiði að draga úr neikvæðum áhrifum hennar. Verkinu er ætlað að varpa ljósi á birtingarmyndir ADHD og hvað hugsanlega veldur þeirri röskun. Til að fá sem gleggsta mynd af lífi barna með ADHD og fjölskyldna þeirra var gerð eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við fjögur börn sem greind eru með ADHD, mæður þeirra og deildarstjóra í skólunum barnanna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að börn með ADHD eiga undir högg að sækja félagslega og í flestum tilfellum einnig í námi. Mæðurnar hafa áhyggjur af stöðu barna sinna og segja uppeldi þeirra krefjast þrotlausrar vinnu. Þeim finnst skorta á þekkingu meðal almennings og skólafólks á vandanum og vegna þessa örli á fordómum í garð barna með ADHD og foreldra þeirra. Í ljós kom að innan grunnskóla er mikill vilji til að koma sem best til móts við þessa nemendur, en ytri aðstæður gera það ekki alltaf kleift. Af niðurstöðunum má draga þá ályktun að auka þurfi almenna fræðslu um ADHD svo þeir sem haldnir eru þeirri röskun mæti frekar skilningi. Börn með ADHD þurfa á mikilli og stöðugri aðstoð að halda innan skóla jafnt sem utan. Þessi aðstoð má ekki vera tilviljanakennd, samvinna milli skóla og heimila barna með ADHD er algjör grundvallarþáttur í átt að bættri velferð þeirra. Abstract This thesis is a final project, 40 ECTS, towards Master´s degree at the University of Akureyri, Faculty of Education. The topic is ADHD, which is a neurological disorder and was long considered only found among children and adolescents. Now days the researchers pay more and more attention to how the ...