Heimahagar heilla . námsvefur fyrir miðstig grunnskóla.

Námsvefurinn Heimahagar heilla hefur vefslóðina http://grenndarkennslagvik.weebly.com/ Eftirfarandi ritgerð er hluti af lokaverkefni til M.Ed. prófs í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri. Meginhluti verkefnisins var sá að útbúa grenndarfræðinámsvef fyrir miðstig Grunnskóla Grindavíkur þar sem al...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Matthildur Þorvaldsdóttir 1966-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18640
Description
Summary:Námsvefurinn Heimahagar heilla hefur vefslóðina http://grenndarkennslagvik.weebly.com/ Eftirfarandi ritgerð er hluti af lokaverkefni til M.Ed. prófs í menntunarfræði við Háskólann á Akureyri. Meginhluti verkefnisins var sá að útbúa grenndarfræðinámsvef fyrir miðstig Grunnskóla Grindavíkur þar sem allar námsgreinar eru samþættar við upplýsinga- og tæknimennt. Markmiðið var að útbúa námsvef með byggðarlagsverkefnum þar sem Grindavík og nágrenni er viðfangsefnið en aðlaga má hvaða byggðarlagi sem er. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að varpa ljósi á það hvort þessi kennsluaðferð sé hentug til grenndarkennslu og styðji jafnframt við grunnþætti menntunar samkvæmt aðalnámskrá. Tilgangurinn með grenndarfræði er sá að efla sögu-, grenndar- og umhverfisvitund nemenda en þessir þættir tengjast sterkum böndum innbyrðis og skipa stóran sess í sjálfsvitund einstaklingsins. Í aðalnámskrá er lagt til að skólarnir hafi grunnþætti menntunar að leiðarljósi og vinni að samþættum verkefnum sem leiði til sterkari sjálfsmyndar nemenda. Með því að nýta grenndarfræðimiðuð námsverkefni er verið að auka líkur á að einstaklingurinn öðlist sterkari sjálfsmynd. Ritgerðin skiptist í fimm hluta og í þeim fyrsta er grenndarkennsla skilgreind og hugtök sem henni tengjast. Í öðrum hluta eru lög um grunnskóla og aðalnámskrá skoðuð og grunnþáttum menntunar gerð skil. Í þriðja hluta er fjallað um hugmyndafræði náms og tvær kennsluaðferðir sem hægt er að tengja við notkun námsvefs í kennslu. Í fjórða hluta er fjallað um upplýsinga- og tæknimennt í skólastarfi og samþættingu hennar við aðrar námsgreinar ásamt hugmyndum að námsverkefnum sem falla að hæfniviðmiðum aðalnámskrár frá árinu 2013. Fjallað er um hugmyndir um námsvef sem kennslumiðil. Í fimmta hluta er námsvefurinn Heimahagar heilla kynntur til leiks og hönnun hans rakin. Á námsvefnum, sem hefur vefslóðina http://grenndarkennslagvik.weebly.com/, er kynning á sögu og umhverfi Grindavíkurbæjar ásamt fjölbreyttum skólaverkefnum sem falla að samþættingu námsgreina við upplýsinga- og tæknimennt og ...