Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum : þekking og forvarnir

Markmið rannsóknarinnar var að kanna þekkingu leikskólakennara í leikskólum Akureyrarbæjar á einkennum og afleiðingum kynferðislegs ofbeldis gegn börnum, ásamt þekkingu þeirra á forvörnum og vinnubrögðum með forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi. Þátttakendur voru fimm leikskólakennarar sem buðu sig...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórdís Eva Þórólfsdóttir 1981-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18635
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna þekkingu leikskólakennara í leikskólum Akureyrarbæjar á einkennum og afleiðingum kynferðislegs ofbeldis gegn börnum, ásamt þekkingu þeirra á forvörnum og vinnubrögðum með forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi. Þátttakendur voru fimm leikskólakennarar sem buðu sig fram og voru valdir með það í huga að enginn þeirra starfaði á sama leikskóla. Þannig var vonast eftir aukinni breidd í reynsluheimi þeirra og komið í veg fyrir að oft væri vísað í reynslu af sömu málum. Um er að ræða eigindlega rannsóknaraðferð en viðtöl voru tekin til að kanna þekkingu og reynslu viðmælenda af rannsóknarefninu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að miklu leyti í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna. Þær sýndu að þeir leikskólakennarar sem rætt var við voru vel að sér þegar kom að afleiðingum kynferðislegs ofbeldis gegn börnum. Þekking þeirra var hinsvegar ekki góð þegar kom að einkennum þess og hvernig best sé að bregðast við þegar upp koma mál þess eðlis. Algengt er að kennararnir finni til öryggisleysis og hræðslu og rekja þeir það í flestum tilfellum til lítillar fræðslu um viðfangsefnið. Þá kom fram að leikskólakennarar eru meðvitaðir um mikilvægi forvarna gegn kynferðislegu ofbeldi í leikskólastarfi en að þekking þeirra á forvörnum og því efni sem ætlað er til forvarnavinnu með börnum ser af skornum skammti. Það hefur þau áhrif að leikskólakennarar vinna sjaldan markvisst með forvarnir í starfi sínu. Þá telja leikskólakennarar auk þess að skortur sé á fræðsluefni til kennara og að fjalla þurfi ítarlegar um viðfangsefnið í grunnnámi kennara. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að í grunnnámi leikskólakennara sé ekki lögð nægileg áhersla á fræðslu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Líklegt er að markviss fræðsla til leikskólakennara skili sér í auknu öryggi þeirra og aukinni getu til að bregðast við ef upp koma mál þess eðlis. The purpose of this study is to investigate the knowledge pre-school teachers in Akureyri have of the symptoms and consequences of sexual violence ...