Forprófun prófþáttanna Botnun setninga og Túlkun setninga fyrir málþroskaprófið Málfærni eldri barna

Talmeinafræðingar sjá um að veita börnum með málþroskafrávik viðeigandi meðferð og þjónustu en til þess þurfa þeir góð greiningartæki svo hægt sé að meta hvort um málþroskafrávik sé að ræða og ef svo er hvar frávik barns í málþroska liggja. Þau málþroskapróf sem íslenskir talmeinafræðingar nota í da...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Auður Hallsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18525
Description
Summary:Talmeinafræðingar sjá um að veita börnum með málþroskafrávik viðeigandi meðferð og þjónustu en til þess þurfa þeir góð greiningartæki svo hægt sé að meta hvort um málþroskafrávik sé að ræða og ef svo er hvar frávik barns í málþroska liggja. Þau málþroskapróf sem íslenskir talmeinafræðingar nota í dag til að meta málþroska barna á aldrinum 4-6 ára eru öll upprunnin erlendis. TOLD-2P er það próf sem aðallega hefur verið notað fyrir þennan aldurshóp en það er notað í þýddri, staðfærðri og staðlaðri útgáfu sem kom út árið 1995. Það hefur gert sitt gagn í fjölda ára en kominn er tími til að semja íslenskt próf frá grunni fyrir börn á aldrinum 4-6 ára sem byggir á þekkingu íslenskra barna. Rannsóknin sem þessi ritgerð fjallar um fólst í því að forprófa prófatriði í tveimur prófþáttum, Túlkun setninga og Botnun setninga, fyrir nýtt málþroskapróf sem verið er að semja fyrir 4-6 ára börn. Prófþættirnir voru lagðir fyrir 98 börn í níu leikskólum í Reykjavík á aldrinum 4-6 ára en þau skiptust á þrjú aldursbil, það er 4;0-4;3 ára, 4;10-5;1 ára og 5;8-5;11 ára. Meginmarkmið með rannsókninni var að athuga hvort prófatriði sem verið var að forprófa hentuðu til að meta málþroska 4-6 ára barna. Ásamt því að leggja prófþætti fyrir börn var spurningalisti sendur til foreldra þeirra þar sem meðal annars var spurt hversu oft lesið væri fyrir barnið í viku og hversu mikinn áhuga það hefði á að skoða bækur og hlusta á sögur. Prófþættirnir tveir meta báðir færni barna í setningafræði, málfræðiþekkingu og orðaforða þeirra. Prófþátturinn Túlkun setninga metur fyrst og fremst skilning barna á setningafræðilegum atriðum en í prófþættinum eru alls 38 atriði með myndum. Prófþátturinn Botnun setninga metur aðallega þekkingu barna á ýmsum málfræðiatriðum, til dæmis fleirtölu og þátíð, og ályktunarhæfni þeirra út frá hlustun. Botnun setninga skiptist í A og B hluta en myndir fylgja A hluta til stuðnings prófatriðunum en engar myndir eru í B hluta. Helstu niðurstöður voru þær að geta barna jókst með hækkandi aldri í öllum prófþáttum í heild en ...