Spilin lögð á borðið : reynsla sjúklings og hjúkrunarfræðings af því að vinna með sjálfsmatsblöð á endurhæfingardeild Kristness á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Rannsóknin: Á Endurhæfingardeildinni á Kristnesi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) hafa sjúklingar skráð og metið eigið heilsufar og rætt það síðan við hjúkrunarfræðing. Sjálfsmatsblöðin byggja m.a. á hugmyndafræði um gagnvirk sam...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hildur Ey Sveinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2006
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/185
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Rannsóknin: Á Endurhæfingardeildinni á Kristnesi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) hafa sjúklingar skráð og metið eigið heilsufar og rætt það síðan við hjúkrunarfræðing. Sjálfsmatsblöðin byggja m.a. á hugmyndafræði um gagnvirk samskipti, sameiginlegri ákvarðanatöku, eflingu sjúklinga og þess að byggja hjúkrun á þeirri merkingu sem sjúklingar leggja í aðstæður sínar. Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar, sem var fyrirbærafræðileg tilfellalýsing, var að kanna reynslu sjúklings og hjúkrunarfræðings af ofangreindu vinnulagi annars vegar og reynslu þeirra af endurhæfingunni hins vegar. Rannsóknarspurningar: Settar voru fram tvær rannsóknarspurningar: 1. Hver er reynsla sjúklings og hjúkrunarfræðings á Endurhæfingardeild FSA, af því vinnulagi að sjúklingar skrái og meti eigið heilsufar, styrkleika og væntingar á sjálfsmatsblöð og ræði matið síðan við hjúkrunarfræðing í endurhæfingarferlinu ? 2. Hver er reynsla sjúklings og hjúkrunarfræðings af endurhæfingunni á Endurhæfingardeild FSA ? Aðferð: Notuð var aðferðafræðileg rannsóknaraðferð samkvæmt Vancouver – skólanum í fyrirbærafræði og var rannsóknin unnin sem tilfellalýsing. Tekin voru tvö viðtöl við bæði hjúkrunarfræðinginn og sjúklinginn sem síðan voru greind niður í þemu. Einnig var rætt við hjúkrunarfræðing sem hefur unnið við þróun sjálfsmatsblaðanna á Endurhæfingardeildinni. Niðurstöður: Fyrra aðalþemað er lýsti reynslunni af sjálfsmatsblöðunum var: Eflandi að leggja spilin á borðið. Meginþemu þessa þema voru: Valkostir gefnir, betri tengsl og andleg líðan, mikilvægi þess að upplifa, skilja og vera metin að verðleikum, vísir að sameiginlegri ákvörðunartöku en virk þátttaka sjúklinga ekki næg, betra upplýsingaflæði og árangur sýnilegur svart á hvítu. Seinna aðalþemað er lýsti reynslunni af endurhæfingunni var: Efling og betri líðan. Meginþemun þessa þema voru: Jákvæð áhrif teymisvinnu, kímni og fordómaleysi. Ályktanir: Reynslan af sjálfsmatsblöðunum og endurhæfingunni er góð en það mætti gefa ...