Mat hjúkrunarfræðinemenda við Háskóla Íslands á endurlífgunarkennslu

Færa má rök fyrir því að efla þurfi kennslu í endurlífgun meðal nemenda í heilbrigðisvísindum, því bent hefur verið á að þekking og færni þeirra í að beita endurlífgun sé ábótavant. Greint hefur verið frá að verklegri færni hnigni hraðar en fræðilegri þekkingu. Þá hefur komið fram að varðveisla á fæ...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Heiðrún Ingólfsdóttir 1988-, Erna Niluka Njálsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18479
Description
Summary:Færa má rök fyrir því að efla þurfi kennslu í endurlífgun meðal nemenda í heilbrigðisvísindum, því bent hefur verið á að þekking og færni þeirra í að beita endurlífgun sé ábótavant. Greint hefur verið frá að verklegri færni hnigni hraðar en fræðilegri þekkingu. Þá hefur komið fram að varðveisla á færni og þekkingu í endurlífgun er tengd fjölbreytni í kennsluaðferðum. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða mat hjúkrunarfræðinemenda við HÍ á endurlífgunarkennslu. Einnig að skoða hvort munur væri á mati á endurlífgunarkennslu eftir því hversu langt nemendur væru komnir í námi. Rannsóknin var megindleg og stuðst við lýsandi tölfræði. Spurningalisti var sendur með tölvupósti til allra hjúkrunarfræðinema við HÍ (n=329) og fengu þátttakendur tvær vikur til að að svara spurningalistanum. Svarhlutfall var rúmlega 62% (n=205). Meðalaldur þátttakenda var 26 ár. Rúmlega 75% nemenda (n=154) töldu að endurlífgunarkennsla þyrfti að eiga sér stað oftar í náminu og tæplega 44% (n=90) töldu að endurlífgungarkennsla ætti að fara fram árlega. Fjörutíu prósent nemenda (n=82) töldu sig örugga í að beita endurlífgun en rúmlega 33% (n=68) töldu sig vera óörugga í að beita endurlífgun. Níutíu og níu prósent (n=202) þátttakenda taldi að hermikennsla væri hentugt kennsluform. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í takt við sambærilegar erlendar rannsóknir. Hermikennsla er talin efla teymisvinnu, sem gæti skýrt að þátttakendur meti hermiþjálfun sem hentugari kennsluform umfram önnur. The teaching of cardiopulmonary resuscitation (CPR) leaves much to be desired and studies have shown that nurses and nursing students lack the knowledge and skills necessary to apply their training during CPR. Furthermore, practical resuscitation skills deteriorate with time, more so than theoretical knowledge, and this decline has been linked with insufficient diversity in teaching methods. The research objective was to induce an active assessment of CPR education and training amongst nursing students at the University of Iceland Faculty of Nursing, as well as ...