Handbók í vettvangsferðum : leikir og verkefni

Leikskólabraut Þessi handbók er gerð með kennara og annað starfsfólk í leikskólum í huga. Hér eru margar hugmyndir að leikjum og verkefnum sem hægt er að vinna með börnunum í tengslum við vettvangsferðir og útikennslu. Það er mikilvægt að börn kynnist umhverfi sínu og læri að umgangast það með virði...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ragna Kristín Árnadóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1844
Description
Summary:Leikskólabraut Þessi handbók er gerð með kennara og annað starfsfólk í leikskólum í huga. Hér eru margar hugmyndir að leikjum og verkefnum sem hægt er að vinna með börnunum í tengslum við vettvangsferðir og útikennslu. Það er mikilvægt að börn kynnist umhverfi sínu og læri að umgangast það með virðingu og af alúð. Handbókin er hvatning til starfsfólks og kennara leikskólanna að fara með börnin út fyrir leikskólalóðina til að leiðbeina þeim og fræða um umhverfi þeirra. Handbókin er hugsuð út frá leikskólanum Vesturbergi í Keflavík en unnt er að yfirfæra hana á nánast hvaða stað sem er. Verkefnin í bókinni eru tengd við námssviðin sex í Aðalnámskrá leikskóla frá árinu 1999. Lykilorð: Náttúruleikir, vettvangsferðir.