Væntingavísitala Capacent Gallup

Í þessari ritgerð er fjallað um Væntingavísitölu Capacent Gallup, greint frá tilgangi hennar og þeim vísbendingunum sem hún gefur meðal annars um einkaneyslu. Mæling vísitölunnar hefur sýnt tiltrú og væntingar fólks til efnahagslífsins, atvinnuástandsins og heildartekna heimila í komandi framtíð. At...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefanía H. Sigurðardóttir 1963-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18259
Description
Summary:Í þessari ritgerð er fjallað um Væntingavísitölu Capacent Gallup, greint frá tilgangi hennar og þeim vísbendingunum sem hún gefur meðal annars um einkaneyslu. Mæling vísitölunnar hefur sýnt tiltrú og væntingar fólks til efnahagslífsins, atvinnuástandsins og heildartekna heimila í komandi framtíð. Atferlishagfræðin gerir ráð fyrir mannlegum breyskleika og fjallar með annars um hvata og hvaða áhrif viðbrögð við þeim hafa á fólk og þar með væntingar þeirra. Einn stærsti ráðstöfunarliður þjóðartekna er einkaneysla og sú hagstærð sem gefur hagvöxt til kynna. Markmið ritgerðarinnar er að skoða hvort vísitalan segi meira til um neyslu dagsins í dag eða framtíðarinnar. Ýmsir þættir hafa áhrif á væntingar svo sem kyn, aldur, menntun og búseta en ekki síður atvinna og efnahagur. Greining á vísitölu um mat á atvinnuástandi og atvinnuleysishlutfalli sýndi að samband þeirra var neikvætt. Mat fólks á atvinnustigi er nokkuð rétt og með auknu atvinnuleysi dregur úr væntingum. Vísitalan gefur svipaða vísbendingu um einkaneyslu eins og kortanotkun hefur gefið lengst framan af en þetta samband hefur rofnað undanfarið. Líkön þjóðhagfræðinnar yfir ráðstöfun þjóðartekna og mælingar Hagstofu á einkaneyslu eru kynntar. Notuð eru gögn Hagstofunnar yfir einkaneyslu og neysluvöruvísitölu ásamt upplýsingum um vísitöluna frá Capacent Gallup. Lagt er mat á styttri tímabil og greining leiðir í ljós nýtt samhengi. Þá sést að undirvísitala um núverandi ástand gefur skýrustu mynd af ástandinu og gerir það nákvæmar en væntingavísitalan sjálf. Væntingavísitalan er skammtímahagvísir sem skýrir meðal annars hluta einkaneyslu.