Viðskiptaáætlun fyrir Arctic Protein. Er grundvöllur fyrir því að framleiða laxamjöl- og lýsi á Íslandi?

Verkefnið er unnið í samvinnu við eigendur Arctic Protein og markmiðið er gerð viðskiptaáætlunar fyrir framleiðslu þeirra á laxamjöl- og lýsi úr slógi og öðrum afskurði. Arctic Protein er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað snemma árs 2014. Hyggst fyrirtækið hefja framleiðslu á laxamjöli- og lýsi úr...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Víðir Örn Guðmundsson 1990-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18224
Description
Summary:Verkefnið er unnið í samvinnu við eigendur Arctic Protein og markmiðið er gerð viðskiptaáætlunar fyrir framleiðslu þeirra á laxamjöl- og lýsi úr slógi og öðrum afskurði. Arctic Protein er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað snemma árs 2014. Hyggst fyrirtækið hefja framleiðslu á laxamjöli- og lýsi úr slógi og afskurðum. Rannsóknarspurningin er sú hvort grundvöllur sé fyrir því að reka verksmiðju sem framleiðir laxamjöl- og lýsi á Íslandi. Áætlað er að framleiðsla hefjist árið 2015 og sömuleiðis sala á vörum þeirra. Árið 2015-2016 gerir fyrirtækið ráð fyrir að framleiða 400-500 tonn af laxamjöli- og lýsi. Helstu niðurstöður eru þær að rekstraráætlanir Arctic Protein sýna að hagnaður muni verða allt frá fyrsta ári. Þó svo hagnaður verði ekki mikill í upphafi, fer hann stigvaxandi. Stofnkostnaður Arctic Protein mun að öllum líkindum vera nokkuð hár og tillögur höfundar um lánsfjárþörf verður að skoða vandlega. Handbært fé í árslok er þó jákvætt öll rekstrarárin í sjóðsstreymis áætlununum tveimur. Núllpunktsgreiningin sýnir að ef fyrirtækið framleiðir 415 tonn af laxamjöli- og lýsi þurfa 340 tonn að seljast til að reksturinn sé á núlli. Ef áætlað er að heildarframleiðsla á afurðum verði 885 tonn árið 2018 þurfa 380 tonn að seljast til að reksturinn sé á núlli. Arctic Protein mun einbeita sér að innanlandsmarkaði fyrst um sinn. Vörurnar verða að öllum líkindum seldar til fóðurframleiðenda og annarra sem þykja hafa not fyrir vörurnar. Að aðlögunartíma liðnum og þegar stöðug framleiðsla verður af laxamjöl- og lýsi leggur höfundur til að erlendir markaðir verða skoðaðir og hugsanlegur útflutningur hefjist.