„En við erum bara venjulegt fólk.“ Viðhorf og þekking innflytjenda á varðveislu einkaskjalasafna

Markmið rannsóknarinnar var kanna viðhorf og þekkingu innflytjenda til varðveislu einkaskjala í skjalasafni, hver staðan væri á Íslandi og hvað væri hægt að gera. Varðveislu einkaskjala innflytjenda hefur verið ábótavant í skjalasöfnum Íslands. Rannsóknin byggðist á eigindlegri rannsóknaraðferðafræð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Larota Catunta, Fany, 1981-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18183
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var kanna viðhorf og þekkingu innflytjenda til varðveislu einkaskjala í skjalasafni, hver staðan væri á Íslandi og hvað væri hægt að gera. Varðveislu einkaskjala innflytjenda hefur verið ábótavant í skjalasöfnum Íslands. Rannsóknin byggðist á eigindlegri rannsóknaraðferðafræði þar sem voru tekin átta hálfopin viðtöl við átta innflytjendur, einn sem hefur afhent einkaskjölin sín til skjalasafns og sjö sem hafa ekki gert það enn. Að auki voru gerðar kannanir á ýmsum skjalasöfnum og athugað með viðhorf stjórnvalda. Ekki hafa verið gerðar sambærilegar rannsóknir á Íslandi en þó eru nokkur dæmi um rannsóknir og verkefni sem tengjast varðveislu einkaskjala frá minnihlutahópum í öðrum löndum, eins og í Bandaríkjunum og á Spáni. Rannsóknin leiddi í ljós að ekki var verið að gera mikið til að fá inn skjöl innflytjenda og ekki var mikið til af þeim til í skjalasöfnum landsins. Athugun á því hvort stjórnvöld væru með slíkar áætlanir eða gerðu sér grein fyrir vandamálinu sýndi að svo var ekki. Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að skortur á þekkingu hjá innflytjendum veldur því að þeir fara ekki með einkaskjölin sín í skjalasafn. Innflytjendur gera sér ekki grein fyrir því til hvers varðveislan er, hvert hlutverk skjalasafns er eða að hægt sé að varðveita einkaskjöl með þessum hætti. Niðurstöður sýndu að fleiri rannsókna er þörf, svo sem að greina hvað aðrar stofnanir sem vinna að söfnun skjala frá minnihlutahópum eru að gera til að ná til minnihlutahópa. Einnig mætti greina nákvæmlega hvaða skjöl innflytjendur eiga og hvað af þeim væri fýsilegt að geyma í skjalasafni. Jafnframt vantar fræðslu varðandi varðveislu einkaskjala í skjalasöfnum fyrir innflytjendur. The aim of this study was to explore immigrants' knowledge and attitude towards preservation of private documents in archives, the status in Iceland and what possibilities were available. Icelandic archives have been lacking in the preservation of immigrants' private documents. The study was based on qualitative research methodology, half ...