Börn og bækur : málörvun og lestur í leikskóla

Leikskólabraut Í þessari ritgerð er fjallað um málþroska barna og leiðir til þess að örva málþroska. Sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um áhrif lesturs fyrir börn á málþroska og hvað starfsfólk leikskóla getur gert til þess að efla málþroska barna. Einnig er fjallað um bókaverkefni sem unnið var á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arna Ásgeirsdóttir
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1813
Description
Summary:Leikskólabraut Í þessari ritgerð er fjallað um málþroska barna og leiðir til þess að örva málþroska. Sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um áhrif lesturs fyrir börn á málþroska og hvað starfsfólk leikskóla getur gert til þess að efla málþroska barna. Einnig er fjallað um bókaverkefni sem unnið var á einni deild leikskólans Grænuvalla á Húsavík. Fjórtán fimm ára börn tóku þátt í verkefninu. Markmið verkefnisins var að gera bækur aðgengilegri á deildinni og skoða hvort það hefði áhrif á áhuga barnanna á því að skoða bækur. Bókasafnið á Húsavík var fengið til samvinnu og fengnar að láni þar um fjörutíu barnabækur auk bóka úr bókasafni leikskólans. Í fjórar vikur fóru börnin heim með tvær bækur sem þau völdu í leikskólanum. Í upphafi verkefnisins fengu foreldrar spurningalista þar sem skoðað var hvort lesið væri fyrir börnin heima. Lykilorð: Börn, bækur.