„Bara svona venjulegt heimili.“ Hugmyndafræðin að baki fjölskylduheimilum Reykjavíkurborgar

Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA-gráðu við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Megintilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvers vegna fjölskylduheimili Reykjavíkurbogar voru sett á laggirnar á sjöunda áratug 20. aldar og hver hugmyndafræðin var að baki þessu tiltekna barnaverndarúrræði. Einnig...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Brynhildur Arthúrsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/18012
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA-gráðu við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Megintilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvers vegna fjölskylduheimili Reykjavíkurbogar voru sett á laggirnar á sjöunda áratug 20. aldar og hver hugmyndafræðin var að baki þessu tiltekna barnaverndarúrræði. Einnig er ætlunin að varpa ljósi á tilgang fjölskylduheimilanna og form. Ritgerðin er fræðileg samantekt að meginuppistöðu og efni hennar er tengt við kenningar og fræði félagsráðgjafarinnar. Til að átta sig á þeirri gerjun sem átti sér stað í félagslegri þjónustu Reykjavíkurborgar og þróun í barnaverndarmálum á tilteknu tímabili voru skoðaðar ársskýrslur, bókanir og fleiri gögn á Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Tekin voru viðtöl við fólk sem þekkti vel til fjölskylduheimila, hvert á sínu sviði, til þess að fá skýrari mynd af úrræðinu. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að á þeim tíma sem fjölskylduheimilin voru sett á laggirnar stóðu barnaverndaryfirvöld í Reykjavík frammi fyrir nýjum áskorunum við að vista börn sem gátu ekki búið hjá foreldrum sínum. Ný þekking á þörfum barna og hugmyndafræðin um heimilisleg barnaverndarúrræði barst til landsins á þessum árum. Ný viðhorf til barnaverndarmála má meðal annars rekja til félagsráðgjafa sem voru að koma heim úr námi um 1960. Breytt viðhorf til uppeldisaðferða kallaði á ný vinnubrögð í félagslegri þjónustu Reykjavíkurborgar. Upp úr þessum hugmyndum er fyrsta fjölskylduheimilið af fjórum stofnað í Skála við Kaplaskjólsveg árið 1965. Fjölskylduheimilin áttu að vera fyrir börn sem ekki hentaði að vera vistuð á einkaheimilum. Hugmyndin var að heimilin ættu að vera rekin eins og „venjuleg“ heimili þar sem byggju hjón með börn. Starfsemi fjölskylduheimila lauk í upprunalegri mynd árið 1991. Efnisorð: Fjölskylduheimili, Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Barnavernd Reykjavíkur, Félagsráðgjöf