„…þegar þeim líður illa.þá gerist ekkert í náminu.“ Upplifun náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum af notkun Baujunnar

Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í upplifun náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum af notkun aðferðar Baujunnar. Baujan er aðferð til að vinna með tilfinningavanda ráðþega. Einnig var markmið að kanna kenningarlegan grunn Baujunnar og hverjar væru forsendur vals náms- og starfsráðgjafa á aðfe...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elín Ólafsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17911
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í upplifun náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum af notkun aðferðar Baujunnar. Baujan er aðferð til að vinna með tilfinningavanda ráðþega. Einnig var markmið að kanna kenningarlegan grunn Baujunnar og hverjar væru forsendur vals náms- og starfsráðgjafa á aðferðinni. Baujan er sjálfsstyrkingaraðferð sem byggir á tilfinningastjórnun og slökunaröndun. Rúmlega 100 náms- og starfsráðgjafar hafa sótt fag¬námskeið Baujunnar frá árinu 2003. Beitt var eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem gerðar voru þátttökuathuganir og tekin viðtöl við sjö náms- og starfsráðgjafa sem nýta sér, eða hafa nýtt sér aðferð Baujunnar í starfi sínu í grunnskóla. Helstu niðurstöður voru þær að upplifun og reynsla náms- og starfsráðgjafa á notkun Baujunnar í starfi var jákvæð. Áberandi var hve margir höfðu bætt einhverju við aðferðina eða nýttu hana ekki í heild, heldur nýttu úr henni það sem þeim fannst árangursríkast. Kenningarlegur grunnur Baujunnar virtist yfirleitt ekki skipta máli og töldu flestir þátttakendur að hún væri sprottin af persónulegri reynslu höfundar og starfsreynslu, s.s. leiklist og slökunartækni. Algengasta forsenda vals á Baujunni var skortur á öðru námsefni sem fæst við sjálfsstyrkingu og mál sem eru tilfinningalegs eðlis. Einnig voru ábendingar annarra innan stéttarinnar algeng forsenda fyrir vali á aðferðinni. The aim of this study was to get an insight into school and career counselor´s experience in using the Buoy; an intervention in emotinal work with children in compulsory schools in Iceland. Another aim was to investigate the theoretical basis of the intervention and the reasons why school and career counselors chose it as an intervention. The Buoy is a self-enhancement approach based on emotional introspection and relaxation through breathing. From the year 2003, more than 100 career counselors in Iceland have attended professional training courses on he Buoy. This is a qualitative study with both participant observations and interviews with seven counselors who use, or ...