Þróun matstækis fyrir trú á eigin getu á sex sviðum kenningar Hollands: Próffræðilegir eiginleikar lokagerðar

Trú á eigin getu (e. self-efficacy) er ekki síður talin hafa áhrif á náms- og starfsval einstaklinga en starfsáhugi (e. vocational interest). Við þróun matstækja sem mæla þessa hugsmíð hefur kenning Hollands um sex áhugasvið verið notuð. Markmið þessarar rannsóknar var að leggja lokahönd á kvarða se...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ína Björg Árnadóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17891
Description
Summary:Trú á eigin getu (e. self-efficacy) er ekki síður talin hafa áhrif á náms- og starfsval einstaklinga en starfsáhugi (e. vocational interest). Við þróun matstækja sem mæla þessa hugsmíð hefur kenning Hollands um sex áhugasvið verið notuð. Markmið þessarar rannsóknar var að leggja lokahönd á kvarða sem mæla trú á eigin getu á sex sviðum Hollands og hafa verið í þróun hérlendis. Þátttakendur voru 231 einstaklingur á aldrinum 21–22 ára. Við þróun kvarðanna var fylgni atriða við eigin kvarða og aðra skoðuð í ljósi kenningarinnar, auk innbyrðis fylgni atriða á hverjum kvarða. Endanlegt matstæki samanstóð af 64 atriðum, bæði athöfnum og námsgreinum sem voru lýsandi fyrir hvert af sex sviðum Hollands. Áreiðanleiki og réttmæti endanlegu kvarðanna var kannað og fjölvíddargreiningu (MDS) beitt til að bera formgerð þeirra saman við kenningu Hollands. Niðurstöður sýndu að röð kvarðanna var í samræmi við kenninguna og þeir mynduðu sporöskjulaga form líkt því sem fyrri rannsóknir á starfsáhuga hérlendis hafa sýnt. Á heildina litið gefur matstækið áreiðanlegar og réttmætar mælingar á trú á eigin getu á sex sviðum Hollands. Það gæti því gefið mikilvægar upplýsingar í ráðgjöf varðandi könnun og val á náms- og starfsferli og nýst í áframhaldandi rannsóknir á trú á eigin getu hérlendis. Self-efficacy is considered to be as important as interest for the career choice of individuals. Holland’s theory of six vocational interest types and structures has been used to develop vocationally related measures of self-efficacy. The purpose of this study was to build on previous work in Iceland and finish developing a reliable and valid instrument for career self-efficacy. Participants were 231 young people age 21-22 years old. For scale construction the correlation between each item with its own scale and others was examined in the light of Holland’s theory as well as the inter correlation of items in each scale. The final instrument consisted of 64 items, both activities and subjects representing each of the six Holland types. Using ...