„Þetta er svona á kantinum.“ Reynsla náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum Akureyrar af lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla

Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum Akureyrar af 23. grein jafnréttislaga, um menntun og skólastarf, með sérstakri áherslu á kynbundið náms- og starfsval. Í lagagreininni eru tilgreindar skyldur skólanna sem menntastofnanna þegar kemur að jafnrétti kynj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Arnfríður Aðalsteinsdóttir 1963-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17886
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum Akureyrar af 23. grein jafnréttislaga, um menntun og skólastarf, með sérstakri áherslu á kynbundið náms- og starfsval. Í lagagreininni eru tilgreindar skyldur skólanna sem menntastofnanna þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Sjö náms- og starfsráðgjafar tóku þátt í rannsókninni og fór gagnasöfnun fram með einstaklingsviðtölum. Grunnskólar Akureyrar hafa allir sett sér aðgerðabundnar jafnréttisáætlanir og því má ætla að þeir standi framarlega í jafnréttismálum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda hins vegar til þess að grunnskólarnir á Akureyri séu ekki markvisst að sinna lögboðinni jafnréttisfræðslu. Náms- og starfsfræðsla virðist sitja á hakanum og vinna með kynbundna starfshugsun nemenda kemst varla að vegna anna við önnur verkefni. Tímaleysi, skert stöðuhlutfall og takmarkað samstarf við kennara eru hindranir sem náms- og starfsráðgjafar mæta í starfi ásamt neikvæðum viðhorfum til jafnréttismála. Jafnréttisáætlanir skólanna, sem eru vel unnar og vandaðar, virðast máttlitlar þegar kemur að framkvæmd. Áætlanirnar einar og sér duga ekki til að skólarnir uppfylli lagalegar skyldur sínar. Ef áhugi, vilji og jákvæð viðhorf stjórnenda og starfsfólks til kynjajafnréttis eru ekki til staðar komast jafnréttismálin ekki á dagskrá.