Staða heimilislausra mæðra á Íslandi í dag. Vandamál, úrræði og þjónusta

Heimilislausum einstaklingum fer fjölgandi hér á landi. Þetta eru einstaklingar á öllum aldri, með ýmsa menntun, reynslu og sögu. Staða heimilislausra mæðra og barna þeirra hefur lítið sem ekkert verið skoðuð á Íslandi. Heimilislausar mæður og börn þeirra virðast vera ósýnlegur hópur í samfélaginu....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hanna Rún Smáradóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17876
Description
Summary:Heimilislausum einstaklingum fer fjölgandi hér á landi. Þetta eru einstaklingar á öllum aldri, með ýmsa menntun, reynslu og sögu. Staða heimilislausra mæðra og barna þeirra hefur lítið sem ekkert verið skoðuð á Íslandi. Heimilislausar mæður og börn þeirra virðast vera ósýnlegur hópur í samfélaginu. Samkvæmt íslenskum upplýsingum eru heimilislausir einungis karlar eða konur ekki mæður eða feður. Árið 2012 voru hagir og fjöldi heimilislausra kortlagðir hér á landi. Þar var greint frá því að konur væru alls 64, aldrei kom fram hversu margar af þessum konum ættu börn. Tilgangur þessarar BA-ritgerðar er að skoða stöðu heimilislausra kvenna á Íslandi þá sérstaklega stöðu mæðra. Fjallað verður um hin ýmsu vandamál sem þær glíma við. Þau eru meðal annars áfengis- og fíkniefnaneysla, geðræn vandamál og auk þess upplifa mæður mikið áfall þegar börnin eru tekin af þeim. Á Íslandi býr ekkert barn með heimilislausri móður. Það býr hjá föður, ættingjum eða er sent í fóstur á vegum barnaverndar. Heimilislausar mæður finna fyrir miklum fordómum í sinn garð. Þær hafa brugðist hlutverki sínu sem móðir og það virðist vera viðurkenndara í samfélaginu að vera forsjárlaus faðir heldur en að vera forsjárlaus móðir. Við þetta fá þær neikvæðan stimpil á sig og eru útskúfaðar úr samfélaginu. Mæðurnar eru þjarkaðar af samviskubiti, sorg og vonbrigðum yfir því að hafa ekki staðið sig. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar sýndu að staða heimilislausra mæðra er mjög veik á Íslandi. Ekkert úrræði er sérstaklega fyrir mæður en heimilislausar konur geta farið í neyðarathvarf sem er eingöngu ætlað konum og heitir Konukot. Úrræðin sem eru til staðar í Reykjavík einblína aðeins á kyn einstaklinganna. Homeless people are a growing population in Iceland. Homeless people in Iceland have different backgrounds and they come from all ages with various education, experience and history. The status of homeless mothers and their children have barely been examined in Iceland. Homeless mothers and their children seem to be invisible group in the society of ...