The effects of temperature in growth of the Atlantic cod (Gadus morhua)

Hitastig er sá umhverfisþáttur sem hefur einna mest áhrif á vöxt fiska. Vöxtur ákvarðast einnig af öðrum þáttum eins og fóðurnýtingu (FCR), kynþroska og líkamsástandi, en allt eru þetta þættir sem geta haft áhrif á sambandið á milli hitastigs og vaxtarhraða. Markmiðið með þessu verkefni var annarsve...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tómas Árnason
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:English
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1783
Description
Summary:Hitastig er sá umhverfisþáttur sem hefur einna mest áhrif á vöxt fiska. Vöxtur ákvarðast einnig af öðrum þáttum eins og fóðurnýtingu (FCR), kynþroska og líkamsástandi, en allt eru þetta þættir sem geta haft áhrif á sambandið á milli hitastigs og vaxtarhraða. Markmiðið með þessu verkefni var annarsvegar að búa til vaxtarlíkan til að áætla vöxt ýmissa stærðarflokka af þorski (Gadus morhua) sem alinn er við mismunandi hitastig, og hinsvegar að kanna áhrif hitastigs og líkamsþyngdar á holdstuðul (K). Vaxtarlíkanið sýnir fram á að kjörhitastig fyrir vöxt (Topt.G) og vaxtarhraði við kjörhita (Gmax) lækkar með aukinni líkamsþyngd. Líkanið áætlar að 30 g þorskseiði sem alin eru í sjókví frá 15. maí, nái í lok þriðja árs 4.6 kg við Norðvestur Ísland og 6.3 kg við Vestur Noreg. Heildar samband þyngdar og lengdar fyrir 8-1303 g þorska sem aldir voru við 4-20°C sýndi að vöxtur fiskanna var jákvætt allometrískur (a=0.0045, b=3.257). Áhrif hitastigs á holdstuðul voru mest á minnstu stærðarflokkana (8-16 g), en áhrifin voru ekki tölfræðilega marktæk á stærri fiska (70-1303 g). Hlutfallslegur holdstuðull (Krel) jókst með þyngd hjá fiski sem alinn var við 4°C, en lækkaði við 16 og 20°C. Á 8 og 12 °C var Krel hátt fyrir flesta stærðarflokka. Lykilorð: Hitastig, Holdstuðull, Vöxtur, Þorskur