Af hverju hættir fólk í blaða- og fréttamennsku? Um starfið, sögu og breytingar

Geisladiskur „Skólahreysti“ fylgir ritgerðinni og er varðveittur í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Í ritgerðinni er fjallað um megindlega rannsókn á því hvers vegna blaða- og fréttamenn hættu í greininni á síðastliðnum tíu árum og reru á ný mið. Sænsk rannsókn var höfð til hliðsjónar í þe...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Edda Sif Pálsdóttir 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17810
Description
Summary:Geisladiskur „Skólahreysti“ fylgir ritgerðinni og er varðveittur í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Í ritgerðinni er fjallað um megindlega rannsókn á því hvers vegna blaða- og fréttamenn hættu í greininni á síðastliðnum tíu árum og reru á ný mið. Sænsk rannsókn var höfð til hliðsjónar í þeim tilgangi að bera niðurstöður saman en þær voru einnig skoðaðar með tilliti til kynjanna. Í ljós kom að fólkið sem hætti í blaða- og fréttamennsku á síðastliðnum áratug var ungt og menntað og sótti í hærri laun og hentugri vinnutíma. Yfir 70% þátttakenda voru sammála því að miklar breytingar hefðu orðið á starfinu á undanförnum áratug en fáir hættu þó af þeim sökum. Flestir fóru að vinna við almannatengsl eða önnur störf tengd upplýsingagjöf og sögðu reynsluna úr blaða- og fréttamennsku nýtast sér. Þá er ákvörðunin um að hætta síður en svo endanleg því næstum þrír af hverjum fjórum geta hugsað sér að snúa aftur. Einnig er fjallað um starf blaða- og fréttamannsins sem slíkt, sögu þess og þróun. Í fræðilegum hluta er m.a. skoðað hvað felst í því að vera blaða- og fréttamaður, blaðamennsku á Íslandi og hugurinn leiddur að erlendum rannsóknum á því hvers vegna fólk hættir og fer að gera eitthvað annað. Þá er fjallað um þær breytingar sem orðið hafa á starfinu á síðastliðnum tíu árum. In this work a quantitative study is presented on why journalists in Iceland switched careers in the last decade. A related Swedish study is used for comparative analysis and the results are also viewed with a gender specific focus. The occupation of a journalist is surveyed from a historical perspective followed by a discussion on the specifics of a journalism career in Iceland and the changes the job has undergone in the past decade. It is found that people who have left careers in journalism are generally young, educated individuals that seek higher compensation and more suitable work hours. A majority of participants agreed that major transformations have occurred on the job in the last decade but this was not a factor in their ...