Þær „vefa í dúk og bönd draumanna rós og reyni“ : handavinnu kennsla stúlkna á Norðurlandi : Húsmæðraskóla Þingeyinga

Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B. Ed.-Prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2008. Því er ætlað að varpa ljósi á stöðu handavinnukennslu í barnaskólum á Norðurlandi fyrstu þrjá áratugi tuttugustu aldar, skýra stöðu handavinnu sem skyldunámsgreinar og athuga námsmögule...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Álfheiður Birna Þórðardóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1781
Description
Summary:Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B. Ed.-Prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2008. Því er ætlað að varpa ljósi á stöðu handavinnukennslu í barnaskólum á Norðurlandi fyrstu þrjá áratugi tuttugustu aldar, skýra stöðu handavinnu sem skyldunámsgreinar og athuga námsmöguleika stúlkna í handavinnu að loknum barnaskóla á þessu tímabili. Því næst er sérmenntun kvennaskoðuð og hugmyndafræðin að baki henni og helstu talsmenn kynntir. Þá er barátta þingeyskra kvenna fyrir húsmæðraskóla rakin og að lokum er fjallað um Húsmæðraskóla Þingeyinga á Laugum og greint frá handavinnukennslu þar eins og heimildir leyfa. Niðurstöður verkefnisins sýna að á Norðurlandi virðist handavinnukennsla hafa verið stunduð nær eingöngu í barnaskólum í bæjum á fyrstu þremur áratugum tuttugustu aldar. Möguleikar stúlkna til framhaldsnáms í handavinnu voru litlir, sérmenntun kvenna helgaðist af hlutverki konunnar sem móður og húsmóður og svo nefnd þjóðernisleg húsmæðrastefna lá að baki stofnun húsmæðraskólanna. Þingeyskar konur börðust yfir tuttugu ár fyrir slíkum skóla og árið 1929 var Húsmæðraskóli Þingeyinga stofnaður á Laugum í Reykjadal. Þar var mikið og gott skólastarf og fjölbreytt handavinnukennsla. Eftir 1970 fór nemendum stöðugt fækkandi og var skólinn lagður niður 1986 vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu.