Áhrif opinna prófkjara á pólitíska forystu í Keflavík

Í rannsókn þessari er gerð úttekt á pólitískri forystu í Keflavík árin 1950-1994. Bakgrunnur, einkenni og tengsl þeirra 43 einstaklinga sem kosnir voru til setu í bæjarstjórn Keflavíkur tímabilið 1950-1994 eru könnuð og greind. Skoðað er hvort og hvernig þau breytast og athugað hvort greina megi ákv...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eysteinn Eyjólfsson 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17755
Description
Summary:Í rannsókn þessari er gerð úttekt á pólitískri forystu í Keflavík árin 1950-1994. Bakgrunnur, einkenni og tengsl þeirra 43 einstaklinga sem kosnir voru til setu í bæjarstjórn Keflavíkur tímabilið 1950-1994 eru könnuð og greind. Skoðað er hvort og hvernig þau breytast og athugað hvort greina megi ákveðin sérkenni á forystu hvers stjórnmálaflokks fyrir sig í bæjarfélaginu. Opin prófkjör verða ráðandi aðferð til uppröðunar framboðslista í Keflavík frá og með árinu 1970. Kannað er hvort greina megi breytingar á pólitískri forystu í bæjarfélaginu eftir 1970, þ.e.a.s. hvort breytingar á framboðsaðferðum breyti pólitískri forystu í Keflavík. Helstu niðurstöður sýna að breytingar verða á samsetningu bæjarfulltrúa í Keflavík en ólíklegt er að rekja megi þær til breyttra framboðsaðferða. Þá breytist tíðni endurnýjunar bæjarfulltrúa ekki með tilkomu opinna prófkjara og flokkarnir endurnýja bæjararfulltrúa sína á sama hátt allt tímabilið, opin prófkjör breyta engu í því efni. Greina má mjög skýr sérkenni og tengsl hjá forystu hvers flokks í Keflavík sem taka ekki breytingum með tilkomu opinna prófkjara. Hinsvegar fylgja opnum prófkjörum tíðari skipti á oddvitum framboðslista, í mestu mæli hjá Sjálfstæðisflokknum í Keflavík.