Nudd er leikur einn

Leiðbeiningarit og dvd er lokað til 1. jan. 2020 Þetta verk er lokaverkefni til B.Ed. prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í því er fjallað um nudd í leikskólum. Verkið er í tveimur heftum. Í því fyrra sem hér birtist, er saga nudds örlítið skoðuð. Þá er farið yfir lög um leikskóla og aðalná...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: (Dilla) Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1775
Description
Summary:Leiðbeiningarit og dvd er lokað til 1. jan. 2020 Þetta verk er lokaverkefni til B.Ed. prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Í því er fjallað um nudd í leikskólum. Verkið er í tveimur heftum. Í því fyrra sem hér birtist, er saga nudds örlítið skoðuð. Þá er farið yfir lög um leikskóla og aðalnámskrá og rök færð fyrir nuddnámi í leikskólum. Litið er til tengdra málefna sem mikið eru í umræðunni um menntamál eins og umhyggju og virðingu. Rannsóknir á nuddi eru skoðaðar. Einnig er rætt um hvort og þá hvar nám og nudd er tengt saman á Íslandi og á Norðurlöndunum. Lagt er mat á það hvort börn í leikskóla geti lært að gefa og þiggja nudd og hvort það sé þeim til góðs. Nuddleiðbeiningarnar, eru í sjálfstæðu hefti ásamt DVD disk sem ætlað er að sýna hreyfinguna í nuddinu. Þær eru ætlaðar leikskólakennurum og öðrum þeim sem vinna með ungum börnum. Í því hefti er nudd einnig skoðað í ljósi fræðanna. Fjallað er um heppilegar aðstæður fyrir nuddtíma og hugað að því sem til þarf þegar kennari undirbýr nuddstund. Leiðbeiningunum er ætlað að lifa sjálfstæðu lífi utan þessa lokaverkefnis. Upplýsingar sem þar koma fram er einnig að finna í þessu hefti.