Úr fórum Lofts Magnússonar. Skjalaskrá

Þetta BA-verkefni er skjalaskrá Lofts Magnússonar augnlæknis á Akureyri. Hann fæddist 15. júlí 1931 að Innri-Fagradal í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu. Eftir grunnskóla hóf hann nám við Menntaskólann á Akureyri og nam síðan læknisfræði við Háskóla Íslands. Hann sérhæfði sig í augnlækningum í Svíþjóð en...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Heiður María Loftsdóttir 1969-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17730
Description
Summary:Þetta BA-verkefni er skjalaskrá Lofts Magnússonar augnlæknis á Akureyri. Hann fæddist 15. júlí 1931 að Innri-Fagradal í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu. Eftir grunnskóla hóf hann nám við Menntaskólann á Akureyri og nam síðan læknisfræði við Háskóla Íslands. Hann sérhæfði sig í augnlækningum í Svíþjóð en eftir námið þar hóf hann störf á Akureyri. Þar starfaði hann sem sérfræðingur í augnsjúkdómum samhliða hlutastarfi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri meðal annars sem yfirlæknir augndeildar. Loftur var alla tíð virkur í félagsstörfum og var meðal annars í stjórn Læknafélags Akureyrar, formaður Augnlæknafélags Íslands og forseti Rótarýklúbbs Akureyrar. Þetta verkefni er skrá yfir öll þau skjöl sem hafa fylgt honum í gegnum árin. Í byrjun er farið yfir fjölskyldu Lofts og æviferil hans. Þar á eftir er kafli um skilgreiningu á nokkrum hugtökum, sem notuð eru í verkefninu, og síðan er farið í verklag við skráninguna. Þar er meðal annars sagt frá því hvernig skráð er og hvers vegna. Næst kemur uppröðun flokka og nánari útskýring á hverjum flokki fyrir sig og að lokum koma upplýsingar um auka-skrárnar þ.e. efnisorða- og mannanafnaskrár og útskýringar á þeim.