Þátttökulýðræði. Hlutverk hverfisráða í þátttökulýðræði

Hverfisráð þriggja sveitarfélaga voru tekin til rannsóknar með hliðsjón af kenningum um þátttökulýðræði. Rannsóknin fólst í því að skoða virkni þeirra, áhrif þeirra á þátttökulýðræðið og áhrif þeirra á ákvarðanatöku sveitarfélaga. Þau hverfisráð sem tekin voru til skoðunar eru hverfisráð á Akureyri,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunnar Kristinsson 1954-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17710
Description
Summary:Hverfisráð þriggja sveitarfélaga voru tekin til rannsóknar með hliðsjón af kenningum um þátttökulýðræði. Rannsóknin fólst í því að skoða virkni þeirra, áhrif þeirra á þátttökulýðræðið og áhrif þeirra á ákvarðanatöku sveitarfélaga. Þau hverfisráð sem tekin voru til skoðunar eru hverfisráð á Akureyri, í sveitarfélaginu Árborg og í Reykjavík. Lögð var sérstök áhersla á hverfisráðin á Akureyri og í Reykjavík. Alls eru 23 hverfisráð starfandi í þessum þremur sveitarfélögum. Níu á Akureyri, þar með talið í Hrísey og Grímsey, fjögur í Árborg og tíu í Reykjavík Rýnt var í fundargerðir hverfisráðanna á tímabilinu 2010-2013 og þær greindar. Þannig var leitast við að fá upplýsingar um mál sem tekin voru fyrir á fundum ráðanna og hver væri uppruni mála sem voru þar til umfjöllunar. Viðtöl voru tekin, í samræmi við eigindlegar rannsóknaraðferðir, við átta einstaklinga. Fjóra á Akureyri og fjóra í Reykjavík. Viðmælendur voru valdir með tilliti til reynslu af starfi hverfisráða og var rætt við bæjar- eða borgarfulltrúa, embættismenn og hverfisráðsfulltrúar. Viðtölin voru tekin til þess að fá upplýsingar um sýn þeirra á hverfisráðin, tilgang þeirra og markmið, virkni, áhrif þeirra á þátttökulýðræðið og ákvarðanir sveitarstjórnanna. Niðurstaða rannsóknarinnar eru þær að virkni hverfisráðanna er mismikil. Þess vegna hafa hverfisráðin eflt þátttökulýðræðið mismikið. Ekki er unnt að finna dæmi um að hverfisráðin hafi haft áhrif á ákvarðanir sveitarstjórnanna í veigamiklum málum. Three neighbourhood boards were studied in accordance with theories on participatory democracy. The study focused on their effectiveness, impact on participatory democracy and their influence on decision making processes within local governments. The neighbourhood boards studied were within the municipalities of Akureyri, Árborg and Reykjavík with an emphasis on boards in Akureyri and Reykjavík. In total there are 23 neighbourhood boards within these three municipalities, nine in Akureyri, including Hrísey and Grímsey, four in Árborg and ten in Reykjavík. ...