Grenndarkennsla á Heimaey : á slóðum Tyrkjaránsins 1627

Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2008. Í verkefni þessu er fjallað um mikilvægi grenndarkennslu í leikskólum, en í grenndarkennslu fléttast saman sagan, umhverfið og einstaklingurinn. Verkefnið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Marta Jónsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1767
Description
Summary:Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2008. Í verkefni þessu er fjallað um mikilvægi grenndarkennslu í leikskólum, en í grenndarkennslu fléttast saman sagan, umhverfið og einstaklingurinn. Verkefnið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er fjallað um hugtakið grenndarkennslu, sjálfsvitundina og undirhugtök hennar söguvitund, grenndarvitund og umhverfisvitund. Einnig er komið inn á mikilvægi umhverfismenntar í leikskólum. Þá er fjallað um kennimennina John Dewey, Lev S. Vygotsky og Loris Malaguzzi og skoðaðar hugmyndir þeirra um að nám barna eigi að byggja á og tengja reynslu þess. Einnig eru skoðaðar hugmyndir þeirra um hlutverk og mikilvægi leikskólakennarans. Mjög miklar breytingar verða á þroskaferli barns á leikskólaárum þess. Skoðaðar eru helstu breytingarnar sem verða á vitsmunaþroska, málþroska og hreyfiþroska. Í seinni hluti verkefnisins er fjallað um þemanám og vettvangsferðir sem eru kennsluaðferðir sem fela í sér beina reynslu barns. Fjallað er um heimabæ minn Vestmannaeyjar og einn atburð tengdan sögu hans það er Tyrkjaránið árið 1627. Gerðar eru tillögur að sjö þematímum þar sem meðal annars er farið í vettvangsferðir á staði sem bera örnefni er tengjast atburði þessum. Í ferðum þessum er athygli barna einnig beint að umhverfinu og náttúrunni og hvatt til góðrar umgengni. Komið er með tillögur að leikjum sem hægt er að tengja Tyrkjaráninu og að lokum er svo úrvinnsla úr vettvangsferðum. Hvað ungur nemur gamall temur segir gamalt máltæki. Í dag ver mikill hluti íslenskra barna stærstum vökutíma sínum í leikskóla. Því er mikilvægt að leikskólarnir vinni markvisst með nágrenni sitt þar sem sýnt hefur verið fram á hversu mikilvægt það er fyrir sjálfsmynd barnsins að þekkja sögu sína og uppruna og því að tilheyra samfélaginu.