Auður á Gljúfrasteini: Rithöfundasöfn og rannsóknir

Ritgerðin fjallar um helstu einkenni rithöfundasafna, tilurð þeirra og þróun hér á landi ásamt rannsókn sem höfundur vann á rithöfundasafninu Gljúfrasteini frá árinu 2013-2014. Sú rannsókn hverfist um feril og verk Auðar Sveinsdóttur. Farið var yfir bréfasafn hennar og önnur skrif auk verka hennar s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Marta Guðrún Jóhannesdóttir 1978-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17631
Description
Summary:Ritgerðin fjallar um helstu einkenni rithöfundasafna, tilurð þeirra og þróun hér á landi ásamt rannsókn sem höfundur vann á rithöfundasafninu Gljúfrasteini frá árinu 2013-2014. Sú rannsókn hverfist um feril og verk Auðar Sveinsdóttur. Farið var yfir bréfasafn hennar og önnur skrif auk verka hennar sem safnið varðveitir. Niðurstöðum rannsóknarinnar verður miðlað með sýningu haustið 2014 í Listasal Mosfellsbæjar og á Gljúfrasteini. Rannsóknin reyndist mikilvægur þáttur í ferli endurskoðunar og endurmats á safninu, sem fólst í því að gera sögu Auðar skil en safnið hverfist fyrst og fremst um eiginmann hennar Halldór Laxness. Í ritgerðinni er einnig varpað ljósi á ástæður þess að rithöfundasöfnum hefur fjölgað töluvert víðs vegar um Evrópu undanfarna áratugi. Staða þeirra er rakin í því umbreytingaferli sem söfn standa frammi fyrir og krefst endurskilgreiningar á hlutverki safna og starfsháttum þeirra. Megin niðurstaða ritgerðarinnar er sú að rannsóknir gegni lykilhlutverki við að endurskoða safnastarf og aðferðir safna við að sýna og segja sögur. Þær reynast auk þess mikilvægur liður í því að svara þeirri gagnrýni sem beinst hefur að söfnum sem ekki þykja hafa með virkum hætti tekist á við málefni líðandi stundar. Með auknum hlut rannsókna á söfnum, sem beinast bæði að safnkostinum og safninu sjálfu, er leið þeirra inn í samtímann og í átt að meiri sátt um safnastofnanir greiðari. The thesis discusses the main features of Writers´ Museums, their origin and development in Iceland as well as my research in Gljúfrasteinn – The Laxness Museum from 2013-2014. That research evolves around the works of Auður Sveinsdóttir Halldór Laxnesses´wife, her letters and other writings among other works conserved at the Museum. The research findings will be presented and communicated through an exhibition in Listasalur Mosfellsbæjar and the Museum in the autumn of 2014. The research proved to be an important part in the process of revision and reevaluation, including creating space for Auður in the Museum that has first and ...