Samlegðaráhrif meðferðar með TNF hemli og methotrexate í sóragigt

Inngangur: Sóragigt sker sig frá öðrum liðbólgugigtum vegna tengsla sinna við psoriasis en hér á landi finnst hún hjá 16% þeirra sem hafa psoriasis. Lyf gegn sóragigt skiptast í þrjá flokka: Einkennalyf (t.d. non-steroidal anti-inflammatory drugs, NSAID), hefðbundin sjúkdómsdempandi lyf (t.d. methot...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefán Páll Jónsson 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17607
Description
Summary:Inngangur: Sóragigt sker sig frá öðrum liðbólgugigtum vegna tengsla sinna við psoriasis en hér á landi finnst hún hjá 16% þeirra sem hafa psoriasis. Lyf gegn sóragigt skiptast í þrjá flokka: Einkennalyf (t.d. non-steroidal anti-inflammatory drugs, NSAID), hefðbundin sjúkdómsdempandi lyf (t.d. methotrexate) og líftæknilyf (t.d. infliximab, adalimumab og etanercept). Gerðar hafa verið margar rannsóknir á virkni methotrexate og líftæknilyfja á sóragigt í sitthvoru lagi en virkni þeirra saman hefur lítið verið skoðuð. Markmið þessa verkefnis var að athuga hvort að notkun methotrexate hafi samlegðaráhrif á meðferðarárangur umfram notkun líftæknilyfjanna einna þegar lyfin eru gefin saman í almennri meðferð, utan lyfjarannsókna. Aðferðir: Fengnar voru upplýsingar úr ICEBIO gagnabankanum um sjúklinga með sóragigt á Íslandi. Notast var við ACR20, ACR50, ACR70 og EULAR skilmerki til að meta árangur á fyrirfram skilgreindum tímapunktum í fyrstu meðferð sjúklinga með TNF hemli, og bornir saman þeir sem fengu methotrexate með meðferðinni við þá sem aðeins fengu líftæknilyf. Gögnin voru síðan greind með aðhvarfsgreiningu og leiðrétt var fyrir BMI, aldri og kyni. Að síðustu var gerð næmnisgreining með intention-to-treat greiningu. Niðurstöður: Eftir 52 vikur höfðu 18% af þeim sem voru aðeins á líftæknilyfi og 65% af þeim sem voru á methotrexate og líftæknilyfi náð ACR50 með OR = 27 (95% CI: 2,75– 889,7; p = 0,0165) á að ná ACR50. Einnig höfðu 42% af þeim sem voru aðeins á líftæknilyfi og 65% af þeim sem voru á methotrexate og líftæknilyfi náð ACR20 með OR = 6,56 (95% CI: 1,06-55,0; p = 0,0426) á að ná ACR20. Umræður: Sjúklingar sem fengu samhliða meðferð með methotrexate með TNF hemli voru tölfræðilega marktækt líklegri til að ná ACR20 og ACR50 eftir 52 vikna meðferð heldur en þeir sem eingöngu fengu TNF hemil. Þessi munur kemur seinna fram í þessari rannsókn en í áður birtum rannsóknum á sama efni í sóragigt og iktsýki, en gæta ber þess að rannsóknarhópurinn var smár. Introduction: In Iceland psoriatic arthritis, an ...