Langtímarannsókn á forspárgildi málþroskaathugana við 5–6 ára aldur um síðari líðan og reynslu

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort málþroskamælingar við fimm ára aldur spái fyrir um ýmsa félagslega og sálræna þætti síðar á lífsleiðinni. Árin 1997 og 1998 var athugaður málþroski 267 leikskólabarna með HLJÓM-2-prófinu. Þessi börn, sem eru nú orðin fullorðin (18 og 19 ára), voru í þessa...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Amalía Björnsdóttir 1966-, Jóhanna T. Einarsdóttir 1958-, Ingibjörg Símonardóttir 1944-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17424
Description
Summary:Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort málþroskamælingar við fimm ára aldur spái fyrir um ýmsa félagslega og sálræna þætti síðar á lífsleiðinni. Árin 1997 og 1998 var athugaður málþroski 267 leikskólabarna með HLJÓM-2-prófinu. Þessi börn, sem eru nú orðin fullorðin (18 og 19 ára), voru í þessari rannsókn beðin að svara rafrænum spurningalista um ýmsa þætti, meðal annars reynslu þeirra af grunnskólagöngu sinni, hvort þau hefðu verið greind meðþætti sem hamla þeim ínámi og hvort þau hefðu stundað nám að loknum grunnskóla. Niðurstöður sýndu marktæk tengsl milli árangurs á HLJÓM-2 og margra þessara þátta. Þau sem höfðusýnt slakan árangur á HLJÓM-2 fannst námið í grunnskóla bæði erfiðara og leiðinlegra, þeim hafði frekar verið strítt eða þau lögð í einelti og höfðu frekar verið í sérkennslu en þau sem hafði gengið betur á HLJÓM-2. Þessi sami hópur var einnig líklegri til að vera með greiningar um örðugleika, til dæmis var rúmlega fjórðungur þeirra sem sýndu slakan árangur á HLJÓM-2 með greiningu um athyglisbrest og fjórðungur með námsörðugleika. Af þeim sem gekk vel á HLJÓM-2 voru aftur á móti 12% með greiningu um athyglisbrest og 2% með námsörðugleika. Ljóst er að slakur árangur á HLJÓM-2 spáir ekki aðeins fyrir um slakan árangur í námi heldur hefur hann einnig forspárgildi um slæmareynslu úr grunnskóla. Mikilvægt er að betri samvinna og samskipti um viðbrögð við niðurstöðum á HLJÓM-2 náist milli leikskóla og grunnskóla. Þannig mætti koma betur til móts við þarfir nemenda í áhættu og draga úr eða koma í veg fyrir neikvæða reynslu þeirra í grunnskóla. The purpose of this longitudinal study was to investigate whether language assessment at five years of age can predict various social and psychological aspects later in life. In 1997 and 1998, the language abilities of 267 preschool children in Iceland were examined with the HLJÓM-2. The HLJÓM-2 is a test evaluating the phonological awareness of preschool children and is administered in the majority of preschools in Iceland. It is a screening tool designed ...