Ölduvirkjanir við Vestmannaeyjar

Meginmarkmið þessa verkefnis er að kanna möguleika á að setja niður ölduvirkjanir við Vestmannaeyjar og afla þannig bænum að hluta fyrir rafmagni. Byrja þarf á að skoða ölduvirkjanir sem í boði eru í heiminum og velja svo útfrá því virkjanir sem gætu verið ákjósanlegur kostur til að kanna möguleikan...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurður Georg Óskarsson 1987-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17372
Description
Summary:Meginmarkmið þessa verkefnis er að kanna möguleika á að setja niður ölduvirkjanir við Vestmannaeyjar og afla þannig bænum að hluta fyrir rafmagni. Byrja þarf á að skoða ölduvirkjanir sem í boði eru í heiminum og velja svo útfrá því virkjanir sem gætu verið ákjósanlegur kostur til að kanna möguleikana fyrir Vestmannaeyjar. Til að geta reiknað út hver hugsanleg afkastageta virkjananna yrði þarf að fá tölur frá Siglingastofnun sem sýna öldufar við Vestmannaeyjar frá árinu 2012. Í framhaldi af því er hægt að áætla raforkuverð.