Bílamenning í Reykjavík: Hegðun fólks á bílaplönum

Fátt hefur haft jafn mikil áhrif á borgarþróun og ör bílvæðing. Lengi framan af var einkabíllinn tákn velmegunar og vaxandi lífsgæða og samfara aukinni útþenslu byggðar varð hann nauðsynlegur. Síðustu ár hafa margar borgir dregið markvisst úr þjónustu við einkabílinn og þannig reynt að draga úr umfa...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hulda Dagmar Magnúsdóttir 1974-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17293
Description
Summary:Fátt hefur haft jafn mikil áhrif á borgarþróun og ör bílvæðing. Lengi framan af var einkabíllinn tákn velmegunar og vaxandi lífsgæða og samfara aukinni útþenslu byggðar varð hann nauðsynlegur. Síðustu ár hafa margar borgir dregið markvisst úr þjónustu við einkabílinn og þannig reynt að draga úr umfangi hans og áhrifum á umhverfi og borgarbrag. Tilgangur verkefnisins er að gera grein fyrir bílastæðamenningu í Reykjavík, viðhorfi almennings og hegðun gagnvart bílaplönum og notkun á þeim. Einnig að kanna hvort mismunandi aðstæður á bílaplönum leiði til mismunandi hegðunar þ.e hvaða þættir í umhverfinu stýra því t.d hvort fólk gengur eða ekur á milli verslana sem tilheyra sama bílaplaninu. Markmiðið er að kanna hversu algengur óþarfa akstur er á bílaplönum og hvort ástæða sé til að leita leiða til að draga úr þessum akstri. Niðurstöðurnar voru að nærri helmingur þeirra sem sáust fara á milli staða á sama bílaplani fóru akandi. Skipulagstengdir þættir eins og hæfilegar göngulengdir, góðar tengingar og skjól hafa mikið að segja en þessir þættir þurfa að fara saman og styðja hver við annan til að hafa teljandi áhrif á hegðun fólks. Bæði of lítið og of mikið framboð af bílastæðum stuðlar að óæskilegri hegðun ökumanna og auka líkur á að bílum sé lagt ólöglega. Það er unnt að hafa áhrif á hegðun fólks með stefnumótandi aðgerðum og draga með þeim hætti úr umfangi bílaplana. Algengustu og áhrifaríkustu aðferðirnar eru gjaldskyld bílastæði og skilgreindur hámarksfjöldi bílastæða á hverju svæði. Efnisorð: Bílastæði, bílaplan, bílvæðing, einkabíllinn, akstur, stöðubrot, skipulag, stefnumótun. Rapid growth of car use has had a major impact on city development. In the beginning a private vehicle was a symbol of prosperity and increasing quality of living. Through the past few years, growing number of cities have reduced services to the users of automobiles to attempt to reduce the impact of car use and parking on the environment and the landscape of the city. The aim of this project was to study the prevalence of people ...