Thermoelectric Devices: Silicon as a possible construction material

Markmið verkefnisins var að smíða tæki sem breytt getur varmaorku beint í rafmagn (thermoelectric device). Slík tæki eru vel þekkt en virkni þeirra byggir á svonefndum Seebeck-hrifum. Hönnunarskilyrði var að virka efnið í tækinu yrði úr kísli (Si). Byrjað var með kísilskífur af mismunandi leiðnigerð...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Birgir Hrafn Hallgrímsson 1982-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17213
Description
Summary:Markmið verkefnisins var að smíða tæki sem breytt getur varmaorku beint í rafmagn (thermoelectric device). Slík tæki eru vel þekkt en virkni þeirra byggir á svonefndum Seebeck-hrifum. Hönnunarskilyrði var að virka efnið í tækinu yrði úr kísli (Si). Byrjað var með kísilskífur af mismunandi leiðnigerð, rafleiðandi og holuleiðandi, sem skornar voru niður og tengdar saman. Verkefnið var unnið við Örtæknikjarna sem staðsettur er í einni af byggingum Háskóla Íslands og er í sameiginlegri eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Afrakstur verkefnisins var tæki sem framleitt getur beint mælanlega rafspennu við hitun. Tækið má hita með ýmsum hætti, svo sem með ljósgleypni, heitum vökva eða hitahellu. Niðurstöður verkefnins munu síðan verða liður í áframhaldandi rannsóknum leiðbeinanda og nemanda á hitaörvaðri rafmagnsframleiðslu. Verkefnið var unnið með styrk frá Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunnar Lnadsvirkjun