Vímuefnaneysla og önnur áhættuhegðun unglinga með þroskahömlun

Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þau vandamál sem unglingar með þroskahömlun geta glímt við, með áherslu á vímuefnanotkun. Rannsóknin skiptist í tvennt, annars vegar voru gögn frá meðferðarstöðinni Stuðlum skoðuð út frá greind og áhættumati. Seinni hluti rannsóknarinnar fól í sér viðtöl v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásgeir Pétursson 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17167
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þau vandamál sem unglingar með þroskahömlun geta glímt við, með áherslu á vímuefnanotkun. Rannsóknin skiptist í tvennt, annars vegar voru gögn frá meðferðarstöðinni Stuðlum skoðuð út frá greind og áhættumati. Seinni hluti rannsóknarinnar fól í sér viðtöl við fjóra fagaðila um málefni unglinga með þroskahömlun sem eiga einnig við önnur vandamál að stríða, til dæmis vandamál á borð við vímuefnamisnotkun, hegðunarerfiðleika og aðra áhættuhegðun. Helstu niðurstöður verkefnisins eru að ungmenni með þroskahömlun sem hafa farið á Stuðla eru líklegri til að hafa átt við vímuefnavanda að stríða en önnur ungmenni sem hafa farið á Stuðla. Nánar tiltekið voru þau ungmenni sem mældust með undir 70 í greindartölu líklegri til að hafa misnotað vímuefni en þau sem voru með 70 eða yfir í greindartölu af þeim sem höfðu verið í meðferð á tilteknu tímabili. Svo virðist því sem þroskahömlun sé áhættuþáttur varðandi vímuefnaneyslu og afbrotahegðun. Niðurstöður benda jafnframt til þess að meðferð og stuðningur við unglinga með þroskahömlun ætti að vera sértækari og á annan hátt en fyrir unglinga sem ekki eru með þroskahömlun og miðast betur við þeirra getustig. Lykilorð: unglingar, vímuefnaneysla, meðferð, lág greind, þroskahömlun. The aim of this study is to shed a light on the problems that adolescents with intellectual disabilities may be applied to, focusing on drug abuse. The study is divided into two parts, the first place the data from on of the treatment centers in Iceland, Stuðlar, with examining intelligence on the one hand and the risk on the other hand. The other part of the study turned to interviews and were four interviews conducted with professionals in the field of adolescence or intellectual disabilities. The aim of that part, amongst other subjects was to discuss problems such as drug abuse, behavioral problems and other risk behavior among adolescence with intellectual disabilities. The main results demonstrated that treatment for adolescents with intellectual ...