Starfsánægja hjá þjónustufyrirtæki á fjármálamarkaði

Verkefnið er lokað Starfsmenn eru ein af megin auðlindum hvers fyrirtækis svo það er mikilvægt að hlúa að þeim og gæta þess að þeim líði vel og séu ánægðir í vinnu sinni. Starfsánægja er hagsmunamál bæði fyrir starfsmennina sjálfa og ekki síður fyrirtækið því ánægður starfsmaður leggur sig fram um a...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Herdís Bjarney Steindórsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1712
Description
Summary:Verkefnið er lokað Starfsmenn eru ein af megin auðlindum hvers fyrirtækis svo það er mikilvægt að hlúa að þeim og gæta þess að þeim líði vel og séu ánægðir í vinnu sinni. Starfsánægja er hagsmunamál bæði fyrir starfsmennina sjálfa og ekki síður fyrirtækið því ánægður starfsmaður leggur sig fram um að gera vel og það hefur áhrif á afkomu fyrirtækis. Í fyrri hluta þessarar skýrslu er gerð grein hvað átt er við með hugtakinu starfsánægja og fyrir þeim þáttum sem hvað helst hafa áhrif á starfsánægju samkvæmt kenningum fræðimanna. Einnig eru skoðaðir þeir þættir innan skipulagheilda sem starfsánægja hefur áhrif á eins og starfsmannavelta, frammistaða og hollusta við vinnuveitanda. Leitað var eftir samstarfi við Lýsingu hf. um að framkvæma rannsókn til að skoða starfsánægju hjá fyrirtækinu. Við framkvæmd rannsóknar var spurningalisti lagður fyrir starfsfólk Lýsingar hf. í Reykjavík og á Akureyri. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að starfsánægja er mikil hjá fyrirtækinu, hvort sem litið er á heildina eða eftir kyni, menntun eða aldri. Starfsandi og félagsleg samskipti eru góð og starfsfólk almennt ánægt með sinn næsta yfirmann sem og yfirstjórn fyrirtækisins. Það sem helst er þörf á að huga að eru starfsþróun og endurmenntun.