Mannauðsstjórnun : hlutverk og ástundun hennar á Íslandi

Verkefnið er lokað Verkefnið er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Hlutverk mannauðsstjóra voru könnuð og rannsókn framkvæmd í því skyni að meta hvernig unnið er út frá þessum hlutverkum í stórum íslenskum fyrirtækjum. Einnig er reynt að koma auga á hvað framtíði...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Lilja Ásgeirsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1703
Description
Summary:Verkefnið er lokað Verkefnið er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Hlutverk mannauðsstjóra voru könnuð og rannsókn framkvæmd í því skyni að meta hvernig unnið er út frá þessum hlutverkum í stórum íslenskum fyrirtækjum. Einnig er reynt að koma auga á hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir mannauðsstjórnun og sérstaklega hvernig sú framtíð lítur út fyrir íslensk fyrirtæki. Mannauðsstjórnun er að verða æ algengari í íslenskum fyrirtækjum, en það er alltaf hægt að bæta um betur. Það rekstrarumhverfi sem fyrirtæki þurfa að kljást við í dag, er umhverfi stöðugra breytinga og því er sérstaklega áríðandi að vera við öllu viðbúinn þegar kemur að því að stjórna mannauð fyrirtækis svo vel fari. Lagt var upp með eftirfarandi rannsóknarspurningarnar: 1. Starfa mannauðsstjórar í stórum fyrirtækjum á Íslandi markvisst eftir fræðum mannauðsstjórnunar? 2. Hefur orðið þróun á undanförnum árum á starfi mannauðsstjóra og ef svo er, hver er hún og hefur vægi mannauðsstjórnunar aukist í kjölfarið? Til að leita svara við þessum spurningum, var framkvæmd rannsókn þar sem viðtöl voru tekin við fimm starfandi mannauðsstjóra í stórum fyrirtækjum á Íslandi.