Sjálfstæði seðlabanka. Markmið - mælikvarðar - árangur

Í þessari 30 ECTS-eininga meistaraprófsritgerð í opinberri stjórnsýslu (MPA) er fjallað um sjálfstæði seðlabanka. Lýst er markmiðum, mælikvörðum, þróun og árangri sjálfstæðisins. Þetta er heimildaritgerð auk þess sem greind eru ákveðin tilvik í þróun Seðlabanka Íslands. Sjálfstæði seðlabanka varðar...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Stefán Jóhann Stefánsson 1957-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/17020
Description
Summary:Í þessari 30 ECTS-eininga meistaraprófsritgerð í opinberri stjórnsýslu (MPA) er fjallað um sjálfstæði seðlabanka. Lýst er markmiðum, mælikvörðum, þróun og árangri sjálfstæðisins. Þetta er heimildaritgerð auk þess sem greind eru ákveðin tilvik í þróun Seðlabanka Íslands. Sjálfstæði seðlabanka varðar einkum stjórn peningamála. Árangurinn er ekki sem skyldi hér á landi ef litið er á markmið um stöðugt verðlag. Hins vegar hefur sjálfstæðið stuðlað að bættum vinnubrögðum, með gegnsæi og ábyrgðarskilum. Hvort tveggja gæti stuðlað að lýðræðislegri sátt um starfsemi Seðlabankans. Í umrótinu eftir bankahrunið minnkaði sjálfstæði Seðlabankans tímabundið út frá mælikvörðum sem notaðir eru. Það var í samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og við lagabreytingar á stjórnskipulagi bankans er stjórnendum bankans var vikið frá störfum. Um leið og lagabreytingin kann að hafa ýtt undir sjónarmið um frekari breytingar og þar með skapað óvissu í starfi Seðlabankans hefur hún lagt grunn að enn meira gegnsæi í starfi bankans. Auk þess ætti ný aðferð við val á bankastjóra og fjölbreyttari samsetning þess hóps sem tekur vaxta-ákvarðanir að skapa betri grunn fyrir sátt um starf bankans. Á hinn bóginn kann aukin áhersla á fjármálastöðugleika að breyta vægi einstakra starfsþátta bankans og þar með að draga úr sjálfstæði. This 30-ECTS thesis for the degree of Master of Public Administration (MPA) focuses on central bank independence. The paper describes the objectives, metrics, evolution, and results of independence. It is a documented research paper and a case study of developments at the Central Bank of Iceland. Central bank independence centres to a large degree on monetary policy. At the Central Bank of Iceland, independence has not generated the expected results in terms of the price stability objective. On the other hand, it has promoted improved work habits through transparency and accountability. Both of these can contribute to a public consensus on the Bank’s activities. During the unrest following the collapse of Iceland’s ...