Ísland - málsvari hafsins eða miskunnarlaus sjóræningi? Orðræðugreining á fiskveiðideilum

Íslendingum er annt um ímynd sína sem fiskveiðiþjóð sem stundar ábyrgar fiskveiðar og býr yfir sérþekkingu sem skapar henni ákveðna sérstöðu innan alþjóðasamfélagsins. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina þurft að hafa hagsmuni atvinnugreinarinnar að leiðarljósi og í vissum skilningi stillt sér upp sem v...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: María Margrét Jóhannsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2014
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16997
Description
Summary:Íslendingum er annt um ímynd sína sem fiskveiðiþjóð sem stundar ábyrgar fiskveiðar og býr yfir sérþekkingu sem skapar henni ákveðna sérstöðu innan alþjóðasamfélagsins. Stjórnvöld hafa í gegnum tíðina þurft að hafa hagsmuni atvinnugreinarinnar að leiðarljósi og í vissum skilningi stillt sér upp sem varðhundi hennar. Í ritgerðinni er leitast við að beita kerfisbundinni nálgun félagsvísinda, orðræðugreiningu, til þess að varpa ljósi á ríkjandi hugmyndir Íslendinga um fiskveiðideilur eins og þær birtast í fjölmiðlum og um leið benda á hvaða hugmyndir hafa ekki hlotið hljómgrunn innan samfélagsins. Fjallað verður um þrjár fiskveiðideilur: Smugudeiluna; þær umdeildu fiskveiðar sem stundaðar hafa verið síðustu ár við Reykjaneshrygg og svo Makríldeiluna sem nú stendur yfir. Við orðræðugreininguna voru allar fréttir íslenskra prentmiðla skoðaðar á þremur tímabilum sem mörkuðu upphaf deilnanna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós mikinn mun á orðræðu í Smugudeilunni annars vegar og hinum deilunum tveimur hins vegar. Markar Smugudeilan sér þannig sérstöðu. Í Smugudeilunni einkenndist orðræðan af umræðu um frelsi til að veiða og hagsmuni útgerðarinnar en töluvert minna bar á umfjöllun um alþjóðlega samvinnu og ábyrga fiskveiðistjórnun og jafnvel gert lítið úr slíku tali. Í hinum tveimur deilunum var annað uppi á teningnum. Þar var lögð áhersla á ábyrgar fiskveiðar og samvinnu ríkja. Þá vakti það athygli hversu rýr hlutur kvenna var í umræðum um deilurnar. Þó að þróunin hafi verið sú undanfarna áratugi að konur sæki í auknum mæli til áhrifa innan atvinnulífsins þá virðist sú ekki vera raunin innan sjávarútvegarins. Nú er áhersla lögð á það að Ísland sé málsvari hafsins en aðeins tíminn mun leiða það í ljós hvort það verði raunin þegar eða ef illa árar. Iceland is a nation that prides itself on responsible fisheries management and belives it can contribute to the international community on such matters. The Icelandic government has through the years been an active advocate of the fisheries industry and in a certain ...