Innleiðing nýrrar sýnar

Verkefnið er lokað til júlí 2013 Verkefni þetta er lokaverkefni höfundar til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Í fyrri hluta verkefnisins er fjallað á fræðilegan máta um innleiðingu stefnumótunar út frá skipulagi fyrirtækja, mannauðsstjórnun, menningu og stjórneftirlitskerfum. Í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Haraldur V. Haraldsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1696
Description
Summary:Verkefnið er lokað til júlí 2013 Verkefni þetta er lokaverkefni höfundar til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Í fyrri hluta verkefnisins er fjallað á fræðilegan máta um innleiðingu stefnumótunar út frá skipulagi fyrirtækja, mannauðsstjórnun, menningu og stjórneftirlitskerfum. Í síðari hlutanum er fjallað um þær breytingar sem Olíufélagið Essó gekk í gegnum þegar félagið fékk nýtt nafn og nýja ásýnd. Breytingarnar eru sérstaklega skoðaðar með tilliti til fræðanna um innleiðingu stefnumótunar sem fjallað er um í fyrri hluta ritgerðarinnar. Rannsóknarspurningin sem leitað er svara við er: Hvernig hefur tekist til með skipulagsbreytingar og samruna við stofnun N1 samsteypunnar? Fyrirtækið stóð frammi fyrir mikilli áskorun vegna ímyndarvanda og uppkaupa á fjölda smærri fyrirtækja. Ákveðið var að ganga til sameiningar allra félaganna undir nýju nafni og slá þannig tvær flugur í einu höggi. Annars vegar að segja skilið við Esso vörumerkið og skilja ímyndarvandann eftir, og hins vegar að efla markaðssókn félagsins undir einu nafni í stað fjölmargra áður. Allt leiddi þetta af sér töluverða hagræðingu. Í heildina litið má því segja að vel hafi tekist til með skipulagsbreytingar og samruna við stofnun N1 samsteypunnar.