Ungir feður á Íslandi: Vægi stuðnings og hlutverk hins opinbera

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig stuðningi og þjónustuúrræðum við unga feður á Íslandi er háttað. Í því fólst meðal annars að kortleggja hlutverk og þátttöku hins opinbera. Rannsóknin byggir á fyrirbærafræði eigindlegra rannsóknaraðferða og voru tekin óstöðluð einstaklingsviðtöl við...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigurbjörg Erna Halldórsdóttir 1985-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16941
Description
Summary:Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig stuðningi og þjónustuúrræðum við unga feður á Íslandi er háttað. Í því fólst meðal annars að kortleggja hlutverk og þátttöku hins opinbera. Rannsóknin byggir á fyrirbærafræði eigindlegra rannsóknaraðferða og voru tekin óstöðluð einstaklingsviðtöl við sex þátttakendur. Þátttakendur áttu það allir sameiginlegt að hafa orðið feður tvítugir eða yngri á árunum 2006-2011. Niðurstöðum rannsóknarinnar er ætlað að veita þekkingu, sem nýst getur við mótun stuðningsúrræða fyrir unga feður á Íslandi og aukið almenna vitundarvakningu um hag þeirra og þarfir. Rannsókninni er einnig ætlað að skapa umræðu um málefni ungra feðra á Íslandi og vekja þannig áhuga almennings og yfirvalda á þeirra stöðu. Meginniðurstöður þessarar rannsóknar eru að skortur sé á opinberum stuðningi og þjónustuúrræðum fyrir unga feður á Íslandi. Allir þátttakendur í rannsókninni töldu að þjónusta fyrir unga feður á vegum hins opinbera ætti að vera meiri og markvissari. Þau úrræði sem eru til staðar eru illa kynnt og vitneskja um þau berst ekki til ungra feðra. Sá stuðningur sem ungir feður fá er að mestu, eða öllu leyti, frá aðstandendum. Aðstandendur hafa þó ekki alltaf burði til að mæta öllum þeim þörfum sem ungir feður hafa. Þar ætti hið opinbera að koma til skjalanna og vera öryggisnet fyrir þá sem á því þurfa að halda, til að auðvelda þeim að takast á við nýtt og samfélagslega mikilvægt hlutverk, öllum viðkomandi til hagsbóta. Lykilorð: Ungir feður, stuðningur, opinber þjónusta, eigindlegar rannsóknaraðferðir The purpose of this study was to explore how support and service measures for young fathers in Iceland are conducted. This included among other things mapping the role and participation of the public sector. The study is based on the phenomenology of qualitative research methods and unstructured interviews were conducted with six individual participants. The participants had all become fathers at age 20 or younger in the period of 2006-2011. The results of the study are aimed at providing ...