Offita á Íslandi : leiðir til þjóðhagslegs sparnaðar

Ritgerðin er lokuð til 2050 Markmið rannsóknarverkefnisins er að kanna kostnað þjóðfélagsins við heilbrigðisþjónustu vegna ofþyngdar og offitu auk þess að finna leiðir sem hugsanlega lækka bæði beinan og óbeinan kostnað þjóðfélagsins vegna offitu einstaklinga. Ásamt því að bera saman kostnað og áran...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrafnhildur Birgisdóttir 1980-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16859
Description
Summary:Ritgerðin er lokuð til 2050 Markmið rannsóknarverkefnisins er að kanna kostnað þjóðfélagsins við heilbrigðisþjónustu vegna ofþyngdar og offitu auk þess að finna leiðir sem hugsanlega lækka bæði beinan og óbeinan kostnað þjóðfélagsins vegna offitu einstaklinga. Ásamt því að bera saman kostnað og árangur mismunandi úrræða. Í upphafi er fjallað stuttlega um offitu og ofþyngd sem alþjóðlegt heilbrigðisvandamál en í síðari köflum er farið yfir hvaða meðferðarúrræði eru í boði á Íslandi, á vegum hins opinbera og á vegum einkaaðila. Jafnframt er fjallað um heilbrigðiskostnað á Íslandi og hlutfall heilbrigðiskostnaðar vegna offitu og ofþyngdar á heimsvísu. Einnig er fjallað um lyfjakostnað á Íslandi vegna offitu og ofþyngdar og kostnað vegna offitumeðferða eins og magahjáveituaðgerða. Helstu niðurstöður eru að margar offitumeðferðir eru í boði en við horfum á vaxandi byrði af sjúkdómum og vanvirkni vegna offitu. Ekki hefur verið gerð kostnaðargreining vegna ofþyngdar og offitu hér á landi og er kostnaður vegna offitu oft falinn á bakvið sjúkdómsafleiðingar, eins og sykursýki, hjarta og æðasjúkdóma. Kostnaður vegna offitu er töluverður og er hann mælanlegur í beinum og óbeinum kostnaði. Offita á Íslandi hefur vaxið gríðarlega og eykur það kostnað heilbrigðisþjónustu