Áhugi og nýting á námsefninu Vinir Zippýs í grunnskólum á Íslandi

Vinir Zippýs er lífsleikninámsefni fyrir 5–7 ára börn sem miðar að því að efla bjargráð ungra barna og hæfni þeirra til að takast á við erfiðleika í lífinu. Námsefnið hefur verið kennt í leik- og grunnskólum hér á landi síðan árið 2007. Vorið 2012 stóð Embætti landlæknis fyrir nafnlausri netkönnun á...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigrún Daníelsdóttir 1975-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16839
Description
Summary:Vinir Zippýs er lífsleikninámsefni fyrir 5–7 ára börn sem miðar að því að efla bjargráð ungra barna og hæfni þeirra til að takast á við erfiðleika í lífinu. Námsefnið hefur verið kennt í leik- og grunnskólum hér á landi síðan árið 2007. Vorið 2012 stóð Embætti landlæknis fyrir nafnlausri netkönnun á meðal starfsfólks grunnskóla til að kanna núverandi stöðu og nýtingu á námsefninu hér á landi. Nánast allir svarendur höfðu heyrt um Vini Zippýs og meirihluti greindi frá því að kennarar við skóla þeirra hefðu sótt námskeið í kennslu námsefnisins. Flestir sem höfðu reynslu af kennslu efnisins greindu frá ánægju með það og töldu efnið hafa haft jákvæð áhrif á skólastarfið, meðal annars í þá veru að samskipti milli nemenda væru betri, að börnin ættu auðveldara með að tjá sig og þau sýndu meiri velvild og samkennd. Einnig komu fram frá kennurum ábendingar um hvernig hægt væri að bæta námsefnið. Þessar niðurstöður sýna að góð reynsla er komin á kennslu námsefnisins Vinir Zippýs í grunnskólum landsins og þeir sem hafa reynslu af kennslu þess greina frá mikilvægum ávinningi fyrir börn. Vert er að hvetja kennara í leikskólum og yngsta stigi grunnskóla til þess að kynna sér þetta námsefni og íhuga að bjóða það sem hluta af þeirri lífsleikni og geðrækt sem stendur ungum börnum til boða í skólakerfinu. Zippy’s Friends is a life skills curriculum for 5–7 year old children that aims to improve young children’s coping skills and their ability to handle life’s adversities. The programme has been taught in Icelandic kindergartens and primary schools since 2007. In the spring of 2012, an anonymous Internet survey was sent to primary school administrators to assess the current status and utilization of the programme in Iceland. Almost all respondents had heard of Zippy’s Friends, and the majority reported that teachers at their school had received training to teach it. Most of those who had experience in teaching Zippy’s Friends reported satisfaction with the programme and believed it had had positive effects on school life and ...