Leikur að möguleikum : umbótastarf í Grunnskólanum á Bakkafirði

Í skólanum á Bakkafirði, með 1. til 10. bekk í örsmáu sjávarþorpi á Norðausturlandi, hafa kennarar gengið lengra en flestir kennarar annarra grunnskóla í þá átt að leyfa nemendum að taka ábyrgð á eigin námi. Í íslensku og stærðfræði vinna elstu nemendur skólans eftir einstaklingsbundnum áætlunum sem...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ingvar Sigurgeirsson 1950-, María Guðmundsdóttir 1972-, Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir 1986-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16838
Description
Summary:Í skólanum á Bakkafirði, með 1. til 10. bekk í örsmáu sjávarþorpi á Norðausturlandi, hafa kennarar gengið lengra en flestir kennarar annarra grunnskóla í þá átt að leyfa nemendum að taka ábyrgð á eigin námi. Í íslensku og stærðfræði vinna elstu nemendur skólans eftir einstaklingsbundnum áætlunum sem þeir eiga sjálfir þátt í að móta. Í samfélagsgreinum og náttúrufræði fást þeir við fjölbreytt og sjálfstæð viðfangsefni, ýmist einir eða fleiri saman. Nemendur ráða viðfangsefnum sínum og efnistökum að mestu og stundum alveg. Áhugi nemenda hefur verið mikill og farið fram úr björtustu vonum. Sama máli gegnir um þátttöku þeirra í mótun verkefna. Í mörgum tilvikum ákveða nemendur að tengja viðfangsefnin miðlun og skapandi vinnu með lifandi flutningi, myndrænni tjáningu, leikþáttum, kvikmyndagerð og sýningum. Nemendur fá að sinna þessum verkefnum ellefu kennslustundir á viku eða um þriðjung skólatímans. Nemendur og kennarar skiptast á um að velja þemu eða viðfangsefni. Kennarar völdu fyrsta viðfangsefnið, Eldgos og jarðskjálftar, en nemendur réðu efnistökum og fengust við fjölbreytilegar athuganir á jarðfræði í fjórar vikur. Dæmi um önnur efni eru Sykursýki, Líf sjómanna, Manga-teiknimynda-sögur, Saga tölvunnar, Hæstu byggingar heims, Tískuhönnun, Kettir, Vampírur, Steinasöfnun, Íslenski hesturinn, Neanderdals-maðurinn, Kleópatra, Leonardo da Vinci og Bermuda-þríhyrningurinn, svo fáein verkefni séu nefnd. Til að marka lok þessarar vinnu komu foreldrar, systkini og aðrir úr heimabyggðinni til að taka þátt í opnu húsi þar sem nemendur greindu frá niðurstöðum, fluttu leikrit, sýndu mynd-irnar sínar og lögðu fram veggspjöld og sýningar. Í greininni er sagt frá aðdrag-anda þessara kennsluhátta og gefin dæmi um verkefni sem nemendur hafa valið að fást við. The teachers in the small compulsory school (grades 1–10) in Bakkafjörður, a tiny fishing village in the North East of Iceland, have gone further than most other teachers in allowing their students to take responsibility over their own learning. In Icelandic and ...