Jöfn umgengni í framkvæmd

Fjölmörg börn á Íslandi búa ekki hjá báðum foreldrum sínum. Á síðustu ára- tugum hefur verið lögð vaxandi áhersla á ábyrgð beggja foreldra á uppeldi barns og rétt barns til að njóta tengsla við báða foreldra sína óháð fjölskyldugerð. Hér reynir á að móta hugtök eins og forsjá, búsetu og umgengni. Lö...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Helga Sigmundsdóttir 1987-, Hrefna Friðriksdóttir 1965-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16807
Description
Summary:Fjölmörg börn á Íslandi búa ekki hjá báðum foreldrum sínum. Á síðustu ára- tugum hefur verið lögð vaxandi áhersla á ábyrgð beggja foreldra á uppeldi barns og rétt barns til að njóta tengsla við báða foreldra sína óháð fjölskyldugerð. Hér reynir á að móta hugtök eins og forsjá, búsetu og umgengni. Lögð hefur verið áhersla á sameiginlega forsjá beggja foreldra en jafnframt að barn eigi lögheimili hjá öðru þeirra og njóti umgengni við það foreldri sem barnið býr ekki hjá. Jafn- hliða hefur þó verið viðurkennt að foreldrar geti samið um jafna umgengni, eða að umgengni barns verði jöfn þeim tíma sem barnið er hjá lögheimilisforeldri sínu. Frá og með 1. janúar 2013 liggur einnig fyrir skýr lagaheimild til að úr- skurða eða dæma jafna umgengni þegar sérstaklega stendur á. Í þessari grein verður fjallað um niðurstöður rannsóknar sem gerð var á inn- taki umgengni samkvæmt staðfestum umgengnissamningum og umgengnis- úrskurðum Sýslumannsins í Reykjavík á árinu 2004 og árabilinu 2008–2012. Markmiðið er að skoða nánar hvort og hvernig samið hefur verið eða úrskurðað um jafna umgengni á undanförnum árum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda meðal annars til þess að samningum af þessu tagi hafi fjölgað jafnt og þétt.