Virkjun frumkraftanna: Ferðamennska eða virkjun í Skaftárhreppi?

Skaftárhreppur er fámennt sveitarfélag í austurhluta Vestur Skaftafellssýslu. Hreppurinn hefur átt undir högg að sækja í atvinnumálum og fólkfækkun er viðvarandi. Helsti atvinnuvegurinn er hefðbundinn landbúnaður, en undanfarin ár hefur ferðaþjónusta orðið mikilvægur vaxtarbroddur í sveitarfélaginu....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Anna Dóra Sæþórsdóttir 1966-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16765
Description
Summary:Skaftárhreppur er fámennt sveitarfélag í austurhluta Vestur Skaftafellssýslu. Hreppurinn hefur átt undir högg að sækja í atvinnumálum og fólkfækkun er viðvarandi. Helsti atvinnuvegurinn er hefðbundinn landbúnaður, en undanfarin ár hefur ferðaþjónusta orðið mikilvægur vaxtarbroddur í sveitarfélaginu. Landslag er enda mjög fjölbreytilegt og ber merki um miklar náttúruhamfarir af völdum jökulhlaupa og eldgosa þar á meðal vegna Skaftárelda. Jökulvötnin sem renna um sveitarfélagið hafa sett mikinn svip á landslag og mannlíf sveitarinnar og oft á tíðum ógnað tilvist íbúanna. Nú eru uppi hugmyndir um að virkja sum þessara jökulfalla. Í þessari grein er fjallað um áhrif virkjunar Hólmsár á ferðamennsku og útivist á þessum slóðum. Gerð var spurningakönnun meðal ferðamanna við Öldufell og við Eldgjá og fengust um fimmhundruð svör. Einnig voru tekin viðtöl við um 40 ferðamenn. Rannsóknin leiddi í ljós að fögur og óspillt náttúra er aðal aðdráttarafl svæðisins. Flestir viðmælendur í rannsókninni voru andvígir virkjuninni og nefndu sem ástæðu að þá yrði ekki lengur um ósnortna náttúru að ræða og sjónræn áhrif yrðu neikvæð en við það missir svæðið sjarma sinn. Þar með töldu þeir að minna áhugavert yrði að ferðast um svæðið ef af framkvæmdum yrði. Öldufellssvæðið er enn tiltölulega lítið nýtt af ferðaþjónustunni en með síaukinni umferð um norður hluta Fjallabaks, sér í lagi í Landmannalaugar, er líklegt að syðri hluti Fjallabaks muni gegna auknu hlutverki fyrir ferðaþjónustuna til framtíðar litið.