Árangur kransæðahjáveituaðgerða á Íslandi

Inngangur: Á Íslandi hafa verið framkvæmdar í kringum 4000 kransæðahjáveituaðgerðir frá því fyrsta aðgerðin var gerð á Íslandi árið 1986. Kransæðahjáveita er algengasta opna hjartaskurðaðgerðin á Vesturlöndum og er kjörmeðferð við útbreiddum kransæðasjúkdómi. Aðgerðina er hægt að gera með hjarta- og...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hannes Sigurjónsson 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16681
Description
Summary:Inngangur: Á Íslandi hafa verið framkvæmdar í kringum 4000 kransæðahjáveituaðgerðir frá því fyrsta aðgerðin var gerð á Íslandi árið 1986. Kransæðahjáveita er algengasta opna hjartaskurðaðgerðin á Vesturlöndum og er kjörmeðferð við útbreiddum kransæðasjúkdómi. Aðgerðina er hægt að gera með hjarta- og lungnavél (HLV) eða á sláandi hjarta (SH). Tilgangur þessarar afturskyggnu rannsóknar var að kanna árangur þessara aðgerða hjá heilli þjóð á fimm ára tímabili, bæði með tilliti til snemmkominna fylgikvilla og dánarhlutfalls innan 30 daga en einnig langtíma lifunar. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til 720 sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á Landspítala árin 2002-2006. Sjúklingarnir skiptust í tvo hópa; 513 einstaklinga sem gengust undir aðgerð með aðstoð HLV (HLV-hópur) og 207 einstaklinga sem gengust undir aðgerð á sláandi hjarta (SH-hópur). Áhættuþættir, fylgikvillar og dánarhlutfall innan 30 daga voru bornir saman milli hópa og forspárþættir lifunar metnir með ein- og fjölbreytugreiningu. Niðurstöður: Karlar voru fleiri í HLV-hópi en áhættuþættir kransæðasjúkdóma, aldur og líkamsþyngdarstuðull reyndust sambærilegir milli hópa, einnig fjöldi æðatenginga og EuroSCORE. Aðgerðir á sláandi hjarta tóku 25 mínútum lengri tíma og blæðing í brjóstholskera var marktækt aukin án þess að það hefði áhrif á fjölda gefinna eininga rauðkornaþykknis í hópunum. Af alvarlegum fylgikvillum voru enduraðgerðir vegna blæðinga algengari í HLV-hópi og heildarlegutími rúmum sólarhring lengri. Minniháttar fylgikvillar voru einnig algengari í HLV-hópi (58% sbr. 48%, p=0,05). Dánarhlutfall innan 30 daga var hins vegar áþekkt í báðum hópum (4% sbr. 3%, p=0,68), einnig fimm ára lifun sem var 93% í báðum hópum. Í fjölbreytugreiningu spáðu hærra EuroSCORE og aldur fyrir dauða innan 30 daga og langtímalifun en ekki tegund aðgerðar (HLV eða SH). Ályktanir: Árangur kransæðahjáveituaðgerða á Íslandi er góður, bæði hvað varðar dánarhlutfall innan 30 daga og langtímalifun. Þetta á jafnt við um aðgerðir sem ...