Deildarstjórinn : eru deildarstjórar vanýttur mannauður í leikskólanum?

Lokaritgerð þessi er hluti til B.Ed -prófs við kennaradeild, leikskólabraut Háskólans á Akureyri vorið 2008. Í ritgerðinni er fjallað um deildarstjórnun og spurningum á borð við hvort deildastjórar séu vannýttur mannauður í leikskólanum og hvernig deildastjórar nýta þann mannauð sem þeir hafa, veltu...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Áslaug Hrund Stefánsdóttir, Eyja Bryngeirsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1662
Description
Summary:Lokaritgerð þessi er hluti til B.Ed -prófs við kennaradeild, leikskólabraut Háskólans á Akureyri vorið 2008. Í ritgerðinni er fjallað um deildarstjórnun og spurningum á borð við hvort deildastjórar séu vannýttur mannauður í leikskólanum og hvernig deildastjórar nýta þann mannauð sem þeir hafa, veltum við fyrir okkur. Markmið ritgerðarinnar var að öðlast dýpri skilning á starfi deildastjóra. Ritgerðin skiptist upp í þrjá megin hluta. Í fræðilega hluta ritgerðarinnar er sjónarhorninu beint að stjórnun deildarstjóra. Fjallað er um stjórnun á fræðilegan hátt og seinna er efnið þrengt og það skoðað út frá stjórnun deildastjóra. Komið er inná hvernig deildastjórar geta nýtt mannauð leikskólans á árangursríkan hátt og er starfslýsingu deildastjóra gerð skil. Í fræðilega kaflanum er einnig fjallað um kvenlæga stjórnun og staðblær er skoðaður út frá fræðunum. Leitað var í smiðju ýmissa fræðimanna við skrif þessa verkefnis, sem á einhvern hátt hafa komið við sögu í skrifum og rannsóknum á sviði stjórnunar í leikskólum. Í öðru lagi ber að nefna aðferðarfræðikaflann. Þar er rannsóknaraðferðinni sem notuð var í ritgerðinni gerð skil og telst hún til eigindlegrar rannsóknaraðferðar. Slík aðferð byggir á viðtölum þar sem hægt er að ná fram mynd af skoðunum fólks og viðhorfum þess. Til þess að leita svara við spurningu okkar var tekið djúpviðtal við reyndan deildastjóra og unnið úr skoðunum hans í fræðilegu samhengi. Í aðferðarfræðikaflanum er stuðst meðal annars við heimildir þeirra Bogdan og Bilken, Kvale, Mac Naughton og Seidmans. Í lokin er niðurstöðum úr viðtalinu gerð skil, viðtalinu er skipt upp í þemu og í umræðukaflanum eru niðurstöður viðtalsins skoðaðar í tengslum við fræðin. Helstu niðurstöður okkar voru á þá leið að starf deildastjóra er gríðlega umfangsmikið og ekki er hægt að telja mannauð hans vanýttan innan leikskólans.