Störf þroskaþjálfa í leikskólum Akureyrar

Markmið þessarar ritgerðar er að sýna fram á þörfina fyrir stöðugildi þroskaþjálfa hjá leikskólum Akureyrarbæjar. Leitast verður eftir því hvaða hugmyndir leikskólastjórar hafa um störf þroskaþjálfa og hvert sé viðhorf þeirra er til þess að ráða þroskaþjálfa til faglegra starfa. Rannsóknarspurningin...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Ágústa Stefánsdóttir 1976-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16359
Description
Summary:Markmið þessarar ritgerðar er að sýna fram á þörfina fyrir stöðugildi þroskaþjálfa hjá leikskólum Akureyrarbæjar. Leitast verður eftir því hvaða hugmyndir leikskólastjórar hafa um störf þroskaþjálfa og hvert sé viðhorf þeirra er til þess að ráða þroskaþjálfa til faglegra starfa. Rannsóknarspurningin fyrir ritgerðina er: Hvernig er þörfum fatlaðra barna mætt innan leikskóla Akureyrarbæjar og að hvaða marki koma þroskaþjálfar þar við sögu. Ritgerðin byrjar á kynningu á störfum og hlutverki þroskaþjálfans. Siðareglur þroskaþjálfa eru skoðaðar en flestar fagstéttir hafa siðareglur til viðmiðunar í sínum störfum. Ástæða þess að það er skoðað í þessari ritgerð er sú að þroskaþjálfi sem starfar á leikskólum þarf að geta unnið út frá þeim reglum. Markhópurinn sem þroskaþjálfinn í þessari ritgerð starfar með eru börn með fötlun á leikskólaaldri. Af þeim sökum verður lauslega kynnt þrjú sjónarhorn á fötlun það er að segja læknisfræðilega sjónarhornið (e. medical model), breska félagslega líkanið (e. social model of disability) og norræni tengslaskilninginn (e. Nordic relational approch to disability). Þar sem ritgerðin snýst um börn með fötlun á leikskólaaldri þá er farið stuttlega í lög um málefni fólks með fötlun, Salamanca yfirlýsinguna sem snýst um mannréttindi, góða skóla og gott samfélag. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er alþjóðlegur mannréttindasamningur en það er nýbúið að lögfesta hann á Íslandi. Þar sem skólakerfið er orðið opnara en það var áður fyrr þá er fjallað um skóla án aðgreiningar og að börn eigi að geta farið í hvaða skóla sem er og hafi þar rétt á þeirri aðstoð sem þau þurfa á að halda. Aðalnámskrá leikskólanna, lög um leikskóla og Skólastefna Akureyrarbæjar verða skoðaðar út frá þroskaþjálfanum. Rannsóknin er eigindleg. Tekin voru tvö viðtöl við leikskólastjóra og þeir spurðir út í hvernig unnið er með börnum með skilgreindar fatlanir á þeirra leikskólum, hverjir það væru sem sinna því starfi og í hverju starfið er aðallega fólgið. Niðurstaðan úr rannsókninni var sú að leikskólastjórarnir sjá ...