Er gagn af rafrænni sjúkraskrá?

Aðgengi að rafrænni heilbrigðisþjónustu hér á landi er ekki jafn langt á veg komin og víða erlendis. Aðgangur einstaklinga að eigin heilsufarsupplýsingum í gegnum gagnvirka gátt er enn í þróun hér á landi. Víða erlendis hefur slík þjónusta verið í notkun um árabil. Viðkvæmni fyrir öryggi persónupplý...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir 1971-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16317
Description
Summary:Aðgengi að rafrænni heilbrigðisþjónustu hér á landi er ekki jafn langt á veg komin og víða erlendis. Aðgangur einstaklinga að eigin heilsufarsupplýsingum í gegnum gagnvirka gátt er enn í þróun hér á landi. Víða erlendis hefur slík þjónusta verið í notkun um árabil. Viðkvæmni fyrir öryggi persónupplýsinga er oftast nefnt sem hindrun þegar innleiðing rafrænnar sjúkraskrár ber á góma. Það skiptir miklu máli með hvaða hætti aðgangur að svo viðkvæmum persónulegum upplýsingum um heilsufar er og því ber stjórnvöldum að tryggja öryggi þeirra við frekari þróun á rafrænni sjúkrkrá. Með notkun á rafrænni sjúkraskrá fær einstaklingur aðgang að allri sinni sjúkrasögu og getur stýrt því hvenær hann notar þjónustuna. Ábyrgðin færist því að einhverju leyti frá heilbrigðisstarfsmönnum til einstaklinganna sjálfra. Til að kanna hvert viðhorf heimilislækna er til þjónustu af þessu tagi var heimilislæknum á Íslandi send viðhorfskönnun og hugur þeirra kannaður. Niðurstöður sýndu að áhyggjur læknanna sneru að öryggi persónuupplýsinga og því að tæknin myndi ekki draga úr vinnuálagi heldur fremur auka það. Sá annmarki er á könnuninni að ekki var unnt að reikna út svarhlutfall þar sem upplýsingar um fjölda viðtakenda fengust ekki. Hinsvegar gefa niðurstöðurnar ákveðna vísbendingu um helstu áhyggjuefni heimilislækna í málefnum er snúa að rafrænni heilbrigðisþjónustu. Lykilorð: Rafræn sjúkraskrá,rafræn heilbrigðisþjónusta,gagnsemi. Access to electronic health care in is not as far advanced in Iceland as abroad. Access to your personal health information through the interactive portal is still under development. In many countries, such services as e-health portals have been in use for years. Sensitivity issues regarding security of personal information is commonly referred to as a barrier when the implementation of electronic medical records is mentioned. It's important to provide a secure access to such sensitive personal information. The government should ensure these safety measures in their further development of personal health ...