Lýsing á stefnumótunarferli

Stefna og stefnumótun er eitt af grundvallarverkefnum í rekstri skipuheilda. Aðferðin lýsir því markmiði sem stefnt er að í framtíðinni og þeim leiðum sem farnar eru til að brúa bilið á milli núverandi stöðu og framtíðarsýnar. Stefnumótun er leið til að rýna inn á við og taka á þáttum í umhverfinu....

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Íris Ellertsdóttir 1982-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16312
Description
Summary:Stefna og stefnumótun er eitt af grundvallarverkefnum í rekstri skipuheilda. Aðferðin lýsir því markmiði sem stefnt er að í framtíðinni og þeim leiðum sem farnar eru til að brúa bilið á milli núverandi stöðu og framtíðarsýnar. Stefnumótun er leið til að rýna inn á við og taka á þáttum í umhverfinu. Með aðferðinni er markmiðið að draga úr óvissu og áhættu og taka um leið afstöðu gagnvart framtíðinni. Fræðimenn nálgast viðfangsefnið úr mismunandi áttum og því eru til fjölmargar kenningar, skilgreiningar og aðferðir um stefnu og stefnumótunarferli. Til einföldunar þá hafa helstu hugmyndir, líkön, aðferðir og verkfæri verið flokkuð. Þannig gætir ákveðins meginþema í aðferðafræði stefnumótunar. Til að stefna nái árangri er mælt með að skipuheild fylgi aðferðafræði bæði við mótun stefnu og innleiðingu hennar. Þverfagleg nálgun fræðimanna á viðfangsefninu veitir skipuheildum svigrúm til að styðjast við aðferðir sem henta starfsemi þess. Innleiðing stefnu hefur þótt vandasamasti hluti stefnumótunarferlis. Í því samhengi er mikilvægt að stýra ferlinu markvisst, halda yfirsýn á hverjum tíma, gera áætlanir um alla þætti ferlisins og ekki síst að fá alla hluteigandi aðila með í ferlið. Meginviðfangsefni rannsóknarinnar er að athuga hvernig þrjú sveitarfélög nálgast stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks. Þetta eru sveitarfélögin Reykjavík, Garðabær og Mosfellsbær. Stuðst er við viðmiðunarlíkan til að meta hvort sveitarfélögin beiti kerfisbundum aðferðum við stefnumótunarferli og jafnframt er athugað hvernig þau nálgast hvern viðmiðunarþátt í stefnumótunarlíkani. Um er að ræða tilviksrannsókn sem miðar að því að ná djúpri sýn á viðfangsefni með notkun á fjölþættum gögnum og aðferðum. Stuðst er við heimildaöflun, gagnagreiningu og hálf opin viðtöl til að greina tilvikið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að sveitarfélögin notast öll við kerfisbundnar aðferðir stefnumótunar, en nálgast ferlið þó á ólíkan hátt. Reykjavík og Garðabær vinna formlega og opið að heildrænni stefnu í málefnum fatlaðs fólks, en stefna Mosfellsbæjar ...