Framtíðarvonir og streita nemenda Háskólans á Akureyri

Verkefnið er lokað Rannsóknir tengdar bjartsýni og svartsýni einstaklinga hafa verið áberandi síðustu áratugi. Bjartsýni hefur ósjaldan verið tengd minni streitu og góðri heilsu og því voru bjartsýni og svartsýni og streita umfjöllunarefni þessarar rannsóknar. Notast var við Life Orientation Test-Re...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jakob Gunnlaugsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1630
Description
Summary:Verkefnið er lokað Rannsóknir tengdar bjartsýni og svartsýni einstaklinga hafa verið áberandi síðustu áratugi. Bjartsýni hefur ósjaldan verið tengd minni streitu og góðri heilsu og því voru bjartsýni og svartsýni og streita umfjöllunarefni þessarar rannsóknar. Notast var við Life Orientation Test-Revised til að kanna almennar framtíðarvonir einstaklinga og Skynjaða streitukvarða Cohen til að mæla hver mikla streitu einstaklingar skynja. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 225 nemendur í Háskólanum á Akureyri, 45 karlar og 180 konur. Enginn munur er á skynjaðri streitu karla (M = 17,09; sf = 6,14) og kvenna (M = 16,09; sf = 5,96), t(223)= 1,00 p> 0,05. Þá eru skynjuð streita svartsýnna (M = 15, 78; sf = 6,14) ekki meiri en bjartsýnna (M = 16,84; sf = 5,81), t(223) = -1.332, p > 0,05. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að ekki sé munur á bjartsýni og svartsýni né skynjaðri streitu nemenda í Háskólanum á Akureyri.