Gagnsemi stefnumótunar fyrir verkefnið Film in Iceland

Film in Iceland er verkefni á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem hýst er hjá Íslandsstofu. Það sér um að kynna Ísland fyrir erlendum kvikmyndaframleiðendum sem ákjósanlegan stað fyrir kvikmyndatökur ásamt því að kynna lög um 20% endurgreiðslu kostnaðar við þá vinnu. Vitað er að 1. júl...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Aðalsteinn Haukur Sverrisson 1973-, Elmar Bergþórsson 1979-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
MPM
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16287
Description
Summary:Film in Iceland er verkefni á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem hýst er hjá Íslandsstofu. Það sér um að kynna Ísland fyrir erlendum kvikmyndaframleiðendum sem ákjósanlegan stað fyrir kvikmyndatökur ásamt því að kynna lög um 20% endurgreiðslu kostnaðar við þá vinnu. Vitað er að 1. júlí 2013 rennur samningur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins við Íslandsstofu út. Eins og staðan er í dag er á huldu hvort sá samningur verður endurnýjaður eða hvort verkefnið fái nýtt heimili. Þar sem Film in Iceland hefur haft á að skipa aðeins einum starfsmanni undanfarinn áratug hefur sá starfsmaður sankað að sér mikilli reynslu og myndað í gegnum árin mjög sterkt tengslanet sem er gríðarlega mikilvægt að glatist ekki ef verkefnið skiptir um heimili. En hvernig má tryggja að þekkingin og reynslan glatist ekki sem mögulega hefði í för með sér að sá vöxtur sem verið hefur í framleiðslu erlendra kvikmynda á Íslandi haldi ekki áfram að vera stöðugur? Það er okkar mat að með því að nota verkfærið stefnumótun á verkefnið Film in Iceland og með því að greina hlutverk verkefnastjórans í þeirri vinnu megi mögulega koma í veg fyrir það. Við komumst að þeirri niðurstöðu með því að vinna hluta stefnumótunarferilsins með verkefnastjóra Film in Iceland sem og með því að taka viðtöl við helstu aðila kvikmyndaiðnaðarins á Íslandi. Film in Iceland (FII) is a project owned by the Ministry of Industries and Innovation, but is managed by Promote Iceland. Film in Iceland is the Icelandic Film Commission, its responsibilities is to market Iceland as a location for foreign film makers as well as providing guidance in the reimbursement of 20% of production cost which is available to all film producers. The agreement between the Ministry and Promote Iceland is set to expire on July 1st 2013. The situation today is unclear because no indication has been given as to a renewal and if the project would be moved to a different home. One project manager is responsible for Film in Iceland and through the years he has gained valuable ...