Tromp á hendi : málörvunar- og lestrarkennsluefni fyrir nemendur sem ekki ná tökum á lestri í upphafi skólagöngu

Lokaverkefni þetta við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2013 er til M.Ed.-gráðu í sérkennslufræði. Markmið með verkefninu er að fjalla um og lýsa námsskipulagi ásamt náms- og kennsluefni þar sem byggt er á gagnreyndum kennsluaðferðum fyrir börn sem eiga við mál- og lestrarörðugleika að stríða...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Tinna Erlingsdóttir 1980-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2013
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/16280
Description
Summary:Lokaverkefni þetta við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2013 er til M.Ed.-gráðu í sérkennslufræði. Markmið með verkefninu er að fjalla um og lýsa námsskipulagi ásamt náms- og kennsluefni þar sem byggt er á gagnreyndum kennsluaðferðum fyrir börn sem eiga við mál- og lestrarörðugleika að stríða. Tilgangur námsefnisins er að styrkja börn sem samkvæmt einfalda lestrarlíkaninu (e. the Simple view of reading) eru talin vera með veikleika í hljóðkerfisvitund og/eða í málskilningi. Unnið er með hljóðkerfisvitund, sjónrænan orðaforða, umskráningu og hljóðaaðferðina, stafsetningu og orðaforða. Kennsluefnið er ætlað til nota í einstaklingskennslu eða fyrir minni hópa, 2–3 nemendur í einu. Áhersla er lögð á að styrkleikar og veikleikar barnanna hafi verið kortlagðir samkvæmt einfalda lestralíkaninu til þess að kennsla verði við hæfi. Það er gert með því að meta hraða í lestri, öryggi, nákvæmni og skilning. Einnig að þyngdarstig lesefnis sé við hæfi. Námsefnið birtist hér í drögum í fræðilegri ritgerð þar sem kennslustundir eru skipulagðar og námsefni lýst. Ætlunin er að hanna kennsluefnið sem smáforrit fyrir spjaldtölvur en í kennsluleiðbeiningum fylgja einnig aðrar útfærslur sem hægt er að nýta sér ef spjaldtölvur eru ekki til staðar. Stefnt er að því að fara í áframhaldandi þróun á námsefninu. Fjallað er ítarlega um grunnþætti og þróun læsis í lokaverkefninu. Líka hvernig lestrarerfiðleikar birtast samkvæmt einfalda lestrarlíkaninu og hvaða gagnreyndu kennsluaðferðir virðast helst virka til þess að ná tökum á lestrarerfiðleikum. This masters thesis is for M.Ed degree in special education, for the Department of Education, University of Iceland spring 2013. The aim of this master´s thesis was to design language and reading material. It´s for first graders in elementary school who have trouble with speech and reading. Trump card is designed to help children who have weaknesses in phonological awaress and phoneme awareness, have trouble decoding letters and have poor listening comprehension. Working with phonological ...